Morgunblaðið - 31.05.2005, Side 21

Morgunblaðið - 31.05.2005, Side 21
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2005 21 MINNSTAÐUR Stökktu til Rimini 9. júní frá kr. 29.990 Munið Mastercard ferðaávísunina Heimsferðir bjóða ótrúlegt tilboð til Rimini þann 9. júní. Njóttu fegursta tíma ársins á þessum vinsælasta sumarleyfisstað Ítalíu. Bókaðu sæti og 4 dögum fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir. Skógarhlíð 18 • sími 595 1000 • Akureyri sími 461 1099 • www.heimsferdir.is Aðeins nokkur sæti Verð kr. 29.990 í viku Verð kr. 39.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. hjón með 2 börn, 2-11 ára, í íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 9. júní. Verð kr. 39.990 í viku Verð kr. 49.990 í 2 vikur Netverð á mann, m.v. 2 í stúdíó/íbúð í 1 eða 2 vikur. Flug, skattar, gisting og íslensk fararstjórn. Stökktu tilboð 9. júní. HVERNIG NOTAR ÞÚ PUNKTA? Grindavík | Ferðamálafélag Grindavíkur hefur ákveðið að halda áfram útgáfu rita um merkustu staði í landi Grindavíkurbæjar. Þannig verður á næstunni gefið út rit um Húshólma í Ögmundar- hrauni. Ferðamálafélagið gaf út rit um Selatanga á síðasta ári og er það til sölu í Saltfisksetri Íslands í Grinda- vík. Ritið sem nú kemur út hefur að geyma upplýsingar um sögu Hús- hólma, að því er fram kemur á vefnum www.ferlir.is, einnig minj- arnar sem í honum eru, tengsl við nálæga minjastaði, aldur minjanna og Ögmundarhrauns sem umlykja þær, aðkomu, hugleiðingar um fólk- ið, verndun, rannsóknir og nýtingu svæðisins til framtíðar. Í framhaldinu er stefnt að útgáfu rita um það sem merkilegt getur talist í Þórkötlustaðahverfi, Járn- gerðarstaðahverfi og Staðarhverfi. Aðalfundur Ferðamálafélagsins var haldinn fyrir skömmu. Þar var Arnbjörn Gunnarsson kosinn for- maður í stað Erlings Einarssonar. Kemur það fram á vef Grindavík- urbæjar að nýkjörinn formaður hyggst halda áfram því góða starfi sem unnið hefur verið á vegum fé- lagsins. Rit um Hús- hólma tek- ið saman Grímsey | Það var aldeilis handa- gangur í öskjunni þegar eldri börn grunnskólans stóðu fyrir árlegri tombólu og kökuuppboði til styrkt- ar ferðasjóði þeirra. Félagsheimilið bókstaflega fylltist af góðum stuðn- ingsmönnum um leið og það opnaði. Foreldrar og allir Grímseyingar standa við bakið á sínum börnum. Einn pabbinn útvegaði milli 100 og 200 vinninga og þá ekki af verri endanum. 109 bækur fyrir alla ald- urshópa. Skólabörnin höfðu sjálf, undir stjórn heimilisfræðikenn- arans Aðalheiðar, útbúið og skreytt brauðtertur og komu síðan með heiman frá sér flottar hnallþórur. Allt þetta rann út eins og heitar lummur á fjörmiklu kökuuppboði. Mikið af peningum safnaðist og ekki veitir af, því í ár er stefnan Færeyjar – 11 manns halda utan og dvelja í þrjá sólarhringa hjá þessari miklu vinaþjóð okkar. Tombóla og kökuuppboð Morgunblaðið/Helga Mattína

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.