Morgunblaðið - 31.05.2005, Page 22

Morgunblaðið - 31.05.2005, Page 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ MINNSTAÐUR Það er gott að rækta garðinn sinn ... Glæsilegur blaðauki um garðinn fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 10.júní. Grænir fingur, blómabörn og grillmeistarar eru á leiðinni út í garð og nú er lag að minna þau á þig. Meðal efnis í blaðinu eru nýjungar í blóma- og trjáframboði, garðhúsgögn, glóðheitar grilluppskriftir, matjurtarækt, heitir pottar, hitalampar á verandir, pallaefni og margt fleira. Auglýsendur! Pantið fyrir kl. 16 þriðjudaginn 7. júní Allar nánari upplýsingar veitir Katrín Theódórsdóttir í síma 569 1105 eða kata@mbl.is LANDIÐ Eftirsótt lóð | Bæjarstjórn Ísa- fjarðarbæjar hefur samþykkt sam- hljóða að úthluta Sigurjóni Sigur- jónssyni lóðunum 19 og 21 við Hafnarstræti á Ísafirði. Olíufélagið ehf. sótti einnig um lóðina númer 21 og hugðist stækka bensínstöð félagsins sem stendur þar við hlið- ina. Fram kemur á fréttavefnum bb.is að reynt var að samræma hagsmuni beggja aðila en tókst ekki.    með 43 ær á fóðrum sl. vetur og undan þeim hefur hann nú fengið 88 lömb. Lömbin verða sprækari með hverjum degi sem líður og bíð- ur nú allur fjárhópurin þess að gróður komi í úthaga svo sleppa megi safninu. Til þeirrar stundar að Óttar telur úthagann nægjanlega gróinn fyrir fé sitt þarf hann að fóðra ærnar vel svo þær haldi holdum og mjólki lömbunum. Hann eyðir því löngum stundum uppi á Kjalveg við að hlúa að fénu og fóðra það. Ærnar þekkja fóstra sinn vel og hópast að honum þegar hann birtist á staðnum. Hellissandur | Nokkrir frístunda- bændur stunda enn búskap í fyrr- um Neshreppi utan Ennis, það er að segja á Hellissandi og í Rifi. Um 300 fjár var á fóðrum í vetur hjá þess- um bændum. Mikið hefur fjölgað hjá þeim síðustu daga en sauðburð- ur hefur staðið yfir og er nú víðast lokið. Einn af þessum frístundabænd- um er Óttar Sveinbjörnsson, kaup- maður í Blómsturvöllum á Hellis- sandi. Óttar er með sauðfé sitt á Kjalveg sem var bújörð skammt frá Hellissandi en hefðbundinn búskap- ur er þar ekki lengur. Hann var 300 fjár á fóðrum undir Jökli Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir Frístundabúskapur Óttar Sveinbjörnsson umkringdur ám sínum og lömbum. Snæfellsjökull og Búrfell í baksýn. „ÉG get hiklaust mælt með þessu við hvern sem er. Við hjónin erum ekki vant fjallafólk og byrjuðum hægt og rólega. Ég tel að flest fjöllin séu þannig að hver og einn geti geng- ið þau á sínum hraða og getu,“ segir Elín- borg Kristinsdóttir sem á sjötugsaldri tók upp á því að ganga á fjöll. Hún gekk á 27 fjöll á síðasta ári. Elínborg vinnur sem ráðskona á véla- verkstæði Strætó í Reykjavík og Guðni vinnur á verkstæðinu. Hún verður 64 ára í sumar og hann sjötugur. Þau hafa ferðast mikið um landið en ekki notað tímann til að ganga á fjöll fyrr en á allra síðustu árum. Fyrir tæpum þremur ár- um tók Elínborg eftir lítilli bók um göngu- ferðir á bensínstöð og tók eintak með sér. Er það leiðabók UMFÍ, Göngum um Ísland, sem hefur að geyma upplýsingar um ýmsar merktar gönguleiðir í verkefni UMFÍ sem nefnist Fjölskyldan á fjallið. Búið er að setja gestabækur í póstkassa á yfir tuttugu fjöllum víðsvegar um landið og göngufólk hvatt til að skrá nöfn sín þar. Landslagið breytist Gengu þau hjónin á nokkur fjöll þá um sumarið og hafa síðan haldið því áfram. Þegar upp var staðið síðastliðið haust hafði Elínborg gengið á 27 fjöll þá um sumarið. Taldi hún sig hafa gengið á öll fjöllin í átaki UMFÍ nema tvö, Ketillaugarfjall í Horna- firði og Eldfell í Vestmannaeyjum. Að auki gekk hún á nokkur fjöll sem ekki voru í bókinni. Hún neitar því að markmiðið sé að ganga á öll fjöllin í átaki UMFÍ, þótt vissulega hefði það verið gaman. „Við förum ekki af stað í þeim tilgangi að ganga á fjöll. Það kemur upp þegar við erum á ferð um landið og sjáum fjall sem okkur langar að ganga á.“ Hún segist hafa lesið lýsingar á göngu- leiðinni upp á Ketillaugarfjall fyrir austan og hafi ekki kjark til að reyna við það. Hæsta fjallið sem hún gekk í fyrra er sjálfsagt Mælifellshnjúkur í Skagafirði en erfiðasta gangan var á Staðarhnjúk í Eyja- firði. „Þetta gefur mér aukna orku og ég sæki líka í þetta vegna útsýnisins. Það þarf ekki endilega að fara á hæstu fjöllin. Landslagið breytist mikið fyrir manni þótt farið sé á lægri fjöll,“ segir Elínborg. Þá segir hún að ekki þurfi alltaf að fara langt og nefnir sem dæmi Reykjaborg í Mosfellssveit. Það fjall láti ekki mikið yfir sér en útsýnið sé ótrú- lega mikið. Elínborg er farin að huga að sumrinu og ætlar að bæta einhverjum fjöllum við. Hún ítrekar þó að markmiðið sé ekki endilega að safna fjöllum. Elínborg Kristinsdóttir gekk á tuttugu og sjö fjöll á síðasta ári og er byrjuð að undirbúa sumarið Gefur mér aukna orku Eftir Helga Bjarnason helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Gestabókin Fjöldi fólks lagði leið sína á Keili um helgina en sleppti því að skrifa í bókina. Morgunblaðið/Golli Fjallgöngur Elínborg Kristinsdóttir og Guðni Sigurjónsson fengu áhuga á fjallgöngum þeg- ar þeim áskotnaðist gönguhandbók UMFÍ. VERKEFNI Ungmennafélags Íslands, Fjöl- skyldan á fjallið, er hluti af stærra verkefni sem nefnist Göngum um Ísland. Vakin er at- hygli á tiltölulega auðveldum gönguleiðum á fjöll og settar gestabækur í póstkassa á áfangastaðina á fjallstindunum. Héraðssambönd og ungmennafélög innan UMFÍ tilnefna fjöll í verkefnið og eru þau ekki nákvæmlega þau sömu ár frá ári. Verið er að velja fjöllin um þessar mundir og koma þau fram í handbókinni sem kemur út eftir miðjan júnímánuð. Upplýsingarnar verður einnig hægt að nálgast á vefnum www.ganga.is. Á síðasta ári voru gestabækur settar á 24 fjöll. Um sex þúsund göngugarpar hafa ritað nöfn sín í þau á hverju ári. Fjölskyldan á fjallið Franskir dagar | Almennur íbúa- fundur verður haldinn á fimmtudag- inn kemur um framkvæmd og skipu- lagningu Franskra daga 2005, en hátíðin hefur verið árviss viðburður á Fáskrúðsfirði mörg undanfarin ár. Fundurinn hefst kl. 20 í Skrúði, að því er fram kemur á austurbyggd.is.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.