Morgunblaðið - 31.05.2005, Page 56

Morgunblaðið - 31.05.2005, Page 56
56 ÞRIÐJUDAGUR 31. MAÍ 2005 MORGUNBLAÐIÐ TÓNLIST Erlendar plötur Oasis – Don’t Believe The Truth  NÚ hlusta ég á lítið annað en nýju Oasisplötuna – þótt ótrúlegt sé. Ótrúlegt, því að maður var eigin- lega búinn að afskrifa þessa hljóm- sveit, sem fyrir ekki svo mörgum árum var lang- stærsta sveit heims. Það er eiginlega eins og Oasis séu búnir að læða sér inn aftur bak- dyramegin. Don’t Believe The Truth er lágstemmd plata og hrá, með einhverjum undirliggjandi „æ skítt með það, rokkum bara“-þræði sem gerir hana heillandi. Lögin hérna eru ekkert merkileg, þannig séð, en þannig hefur það alltaf ver- ið með Oasis. Það sem hefur skipt öllu máli er að gæða smíðarnar lífi og sjarma og þá skiptir það ekki máli þó að hvert og eitt lag minni þig á þrjú önnur. Fyrstu tvær plöt- ur sveitarinnar eru ófrumlegri en ansk. en algjörar snilldarplötur fyr- ir það. T.d. eru lögin hans Liam á þessari plötu næstum því of einföld en þau virka. Kinks, Bítlarnir og önnur hver sýrokksgrúppa frá sjö- undaáratungum eru þá úti um allt á plötunni og það er bara fínt. Mjög fínt meira að segja. Andy Bell, gamli Ride-hundurinn, á hér stórgott inngangslag og einnig eitt það besta, „Keep The Dream Alive“, þar sem Liam „Liam“-ar yf- ir sig. Þetta kærkomna kæruleysi og blátt áfram trukk fer Oasis vel – alveg eins og það gerði í blábyrj- uninni. Það er kannski ekki rétt að hlaupa upp til handa og fóta og básúna að Oasis séu „komnir aft- ur“. En þetta er hiklaust það besta sem þeir hafa gert síðan What’s The Story. Og nú langar mig á Oasistónleika. Arnar Eggert Thoroddsen Halló aftur EMILÍANA Torr- ini ætlar að fagna útgáfu smáskíf- unnar „Heartstopp- er“ með því að spila á ókeypis tónleikum í Tate Britain- galleríinu í London á föstudaginn. „Heartstopper“ er ætlað að fylgja eftir laginu „Sunny Road“, sem hefur m.a. notið vinsælda á ensku útvarps- stöðinni Xfm. Að- gangur er sem fyrr segir ókeypis, en hún mun spila í ein- um sýningarsal safnsins og því er ekki pláss fyrir mikinn fjölda gesta. Aðdáendur Emilíönu geta náð í lagið og myndbandið „Heartstopper“ á roughtradere- cords.com, en myndbandið er í leikstjórn Davids Lea, sem unnið hefur með Radiohead og Offspr- ing. Söngkonan mun koma fram á ýmsum tónlistarhátíðum og við- burðum í sumar, eða sem hér seg- ir:  Tate Britain-galleríinu í Lond- on – 3. júní.  Glastonbury-hátíðinni, Guardi- an-tjaldinu – 25. júní.  Belladrum Tartan Heart- hátíðinni, aðalsviði – 12. ágúst.  Summer Sundae Weekend, innisviðinu – 13. ágúst.  V-hátíðinni, JJB-höllinni, Hyl- and Park – 20. ágúst.  V-hátíðinni, JJB-sviðinu, Weston Park, Stafford – 21. ágúst.  Greenbelt-hátíðinni, aðalsviði – 26. ágúst.  Bestival, aðalsviði 11. sept- ember. Tónlist | Ný smáskífa frá Emilíönu Torrini í næstu viku Emilíana hefur nóg að gera við kynningu á plötunni sinni, Fisherman’s Woman. Ljósmynd/Kristinn Ingvarsson Spilar í Tate- galleríinu á föstudaginn Heimildar- og stuttmyndahátíð- inni Shorts & docs lauk á sunnu- daginn með verðlaunaafhendingu. Hátíðin sem stóð dagana 25.–29. maí, var haldin í fimmta sinn. Heimildarmynd Helgu Brekkan, Rithöfundur með myndavél sem fjallar um einka-kvikmyndir rit- höfundarins Guðbergs Bergs- sonar, hlaut verðlaun í flokki heimildarmynda. Hrönn Sigurðar- dóttir framleiðandi myndarinnar, veitti verðlaununum viðtöku í fjarveru leikstjórans. Stuttmynd Gríms Hákonarsonar, Slavek the Shit, sem fjallar um ástamál kló- settvarða, hlaut verðlaun sem besta stuttmyndin. Grímur er ný- kominn frá Cannes þar sem stutt- mynd hans vakti verðskuldaða at- hygli. Það voru Ninna Hafliðadóttir frá 66 gráðum norður og Birna Gunnlaugsdóttir frá Íslandsbanka sem afhentu sigurvegurunum verðlaunin. Á hátíðinni voru sýndar hátt í fjörutíu stutt- og heimildarmyndir á aðeins fimm dögum. Verðlaun veitt á Shorts & docs Morgunblaðið/Jón Svavarsson Ninna Hafliðadóttir frá 66° N veitir Hrönn Kristinsdóttur verðlaun fyr- ir bestu heimildarmyndina Rithöf- undur með myndavél. Með þeim er Margrét Jónasdóttir formaður dómnefndar. Morgunblaðið/Jón Svavarsson Birna Einarsdóttir frá Íslands- banka veitir Grími Hákonarsyni verðlaun fyrir stuttmynd hans, Slavek the Shit. SÖNGLEIKURINN Múlan Rús var frum- sýndur í Loftkastalan- um síðastliðinn föstu- dag. Hann var raunar áður frumsýndur fyrr á árinu, en þá í Fjöl- brautaskólanum í Garðabæ. Sýningin sló eftirminnilega í gegn, gekk svo vel og þótti takast svo vel til að ástæða væri til að flytja hana í Loftkastalann. Það er leikkonan Björk Jakobsdóttir sem samdi leikgerð og leik- stýrir en í sýningunni taka þátt um fjörutíu manns frá FG, þar af fimmtán dansarar. Sagði Björk í samtali við Morgunblaðið á föstu- dag að hún hefði dottið niður á mikið af hæfi- leikafólki, sem hefði átt þátt í velgengni sýning- arinnar. Fjöldi sýninga er tak- markaður og eru aðeins áætlaðar fimm sýningar í júní, helgina 3. og 4. júní og 10., 11. og 12. júní. Sýningar hefjast kl. 20. Morgunblaðið/Golli Unga hæfileikafólkinu úr FG var klappað lof í lófa eftir frumsýninguna. Jóhann Már Helgason og Daníel Þór Bjarnason.Leikhópurinn fagnaði að vonum ákaft baksviðs. Leikhúsið Loftkastalinn verður Rauða myllan ROLLING STONE ROGER EBERT Voksne Mennesker kl. 6 - 8.10 og 10.10 Crash kl. 5.45 - 8 og 10.20 b.i. 16 The Hitchhiker´s ... kl. 5-45 - 8 og 10.20 The Jacket kl. 5.45 - 8 og 10.20 b.i. 16 The Motorcycle Diaries kl.10 Maria Full og Grace kl. 8 b.i. 14 Vera Drake kl. 5,40 Í hraða lífsins kemur að því að við rekumst á hvert annað lí i í i Kvikmynd eftir Óskarsverðlaunahafann, Paul Haggis (“Million Dollar Baby”). Sláandi og ögrandi mynd sem hefur fengið einvala dóma. ROGER EBERT ROLLING STONE FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR Í hraða lífsins kemur að því að við rekumst á hvert annað S.K. DV. FURÐULEGASTA ÆVINTÝRI ALHEIMSINS HEFST ÞEGAR JÖRÐIN ENDAR Fyrsta stórmynd sumarsins  DV  MBL  Capone XFM  Capone XFM S.K. DV. H.L. MBL. H.L. MBL. Fyrsta stórmynd sumarsins  MBL DV

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.