Fréttablaðið - 19.12.2005, Page 52

Fréttablaðið - 19.12.2005, Page 52
 19. desember 2005 MÁNUDAGUR18 Lýsing: Komið er inn í flísalagða forstofu á neðri hæðinni. Þaðan er gengið inn í hol með gestasnyrtingu en þar er veggklósett og flísar á gólfi. Inn af holinu er gengið inn í stórt þvottahús og þaðan gengið inn í bílskúr. Þar er einnig eldhús með borðkrók, sprautu- lakkaðri innréttingu, keramikhelluborði og góðum tækjum frá AEG, innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Á gólfinu er góður linoleumdúkur. Stofa er með eikarparkett á gólfi og þaðan er útgengt á góðan afgirtan sólpall. Breiður stigi liggur upp á efri hæð þar sem komið er upp á pall með eikarparketti á gólfi. Þar er einnig hjónaherbergi með góðum skápum úr birki, góðu útskoti og stóru geymslulofti. Barnaherbergin eru þrjú. Á hæðinni er líka stórt baðherbergi með baðkari og sturtuklefa, flísalagt í hólf og gólf. Úti: Bílskúrinn mælist 23 fermetrar. Gott geymsluloft er yfir bílskúrnum og hluti af honum nýtist sem aukaherbergi. Húsið var málað síðastliðið sumar að utan. Annað: Húsið er steinhús, byggt árið 1991. Stutt er í skóla og alla þjónustu. Verð: 41,9 milljónir Fermetrar: 196 Fasteignasala: Remax 112 Reykjavík: sólpallur og stutt í skóla Hvannarimi 4: parhús á tveimur hæðum með bílskúr og sólpalli Einbýli, rað- og parhús HOLTSBÚÐ, GARÐABÆ. Nýkom- in í einkasölu mjög gott og vel stað- sett tvílyft einbýli í Garðabænum. Húsið er alls 294 fm., þ.m.t. innb. 47 fm. bílskúr. Einstaklega góð stað- setning. Möguleiki á því að hafa tvær íbúðir. Óskað er eftir tilboðum í eignina. Hæðir ÁSBÚÐARTRÖÐ. Vorum að fá í einkasölu góða hæð með sérinn- gangi í tvíbýli. Hæðin er 126 fm án geymslu og þvottahúss í kjallara. Hægt að hafa 4 svefnherbergi. Góð- ur, afgirtur garður. Verð 26,5 millj. 3ja herb. BREIÐVANGUR. Nýkomið í sölu mjög góð og vel skipulögð 3ja herb. íbúð á annarri hæð á góðum stað í Norðurbænum, Hf. Tvö góð herbergi, björt stofa, fallegt olíuborið parket á eldhúsi og stofu. Verð kr. 13,5 millj. 2ja herb. KRÍUÁS. Nýkomin í einkas. glæsi- leg og björt 2ja - 3ja herb. endaíbúð á fyrstu hæð í klæddu fjölbýli í Ás- landinu. Góður sérgarður fylgir íbúðinni. Fallegar innréttingar og gólfefni. Verð kr. 17,9 millj. Íbúðin er laus til afhendingar. Í smíðum KIRKJUVELLIR Í smíðum mjög gott 6 hæða lyftufjölbýli á góðum stað á Völlunum, Hafnarfirði. 4 íbúðir á hæð, 3ja - 4ra herb. íbúðir. Mjög bjartar og vel skipulagðar íbúðir. Íbúðirnar skilast fullbúnar að utan og einnig að innan fyrir utan gólfefni. Vandaðar innréttingar og tæki. Mjög traustur verktaki. Afhending sept. - okt. 2006. Allar nánari uppl. og teikningar á skrifstofu Fasteignastofunnar. Verð frá 16,7 millj. ESKIVELLIR 7 Erum með í sölu stórglæsilegt lyftufjölbýli á Völlun- um í Hafnarfirði. Alls 37 íbúðir ásamt 26 stæðum í bílakjallara. Afar vandaður frágangur, m.a. opnanlegt öryggisgler fyrir svöl- um. Sérinngangur af svölum. 2-3ja herb. verð frá kr. 16,1 millj. 4ra herb. verð frá kr. 19,4 millj. Traustir verktakar, ER-verktakar. Nánari upplýsingar og teikningar á skrifstofu okkar. Fr um Hverfisgata, Hf.-aukaíbúð Vorum að fá í sölu stórt og mikið endurnýjað einbýli í hjarta Hafnar- fjarðar. Húsið er alls 290 fm, kjallari og 2 hæðir. Í kjallara er góð ca 90 fm séríbúð, kjörin til útleigu. Íbúðin uppi er ca 190 fm og mikið endurnýjuð, m.a. eldhús sem er glæsilegt. Góð gólfefni. Þak yfirfarið og lagfært fyrir tæpum 2 árum. Í íbúð eru 5 svefnher- bergi. Sjarmerandi hús örstutt frá allri daglegri þjónustu í Miðbænum. Klettaberg Vorum að fá í einkasölu mjög fal- lega hæð með sérinngangi á frá- bærum stað í Setberginu. Íbúðin er á tveimur hæðum og alls 152 fm auk 27 fm bílskúrs eða alls 179 fm. Íbúðin er afar falleg, m.a. með glæsilegu, endurgerðu baðher- bergi og nýjum flísum á forstofu og holi. 4 góð sv.herb. og sólst. Frá- bær staðsetn. örstutt frá skóla og verslun. Verð 37,9 millj. Fasteignastofan óskar landsmönnum gleðilegra hátíðar og farsældar á komandi ári. Sími 565 5522 Gleðileg jól og farsælt komandi ár þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða Starfsfólk Hraunhamars Fallegar eignir í hátíðaskapi Fr um 568 1000 Grensásvegi 12A – www.frum.is Bestu jóla- og nýjárskveðjur. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.