Réttur - 01.06.1948, Qupperneq 10
98
RÉTTUR
Mörgum hefur verið það undrunarefni, — og að vonum
—, hversu langlíf og árangursrík Kommúnistaávarpið og önn.
ur rit þeirra Marx og Engels hafa orðið. Það er fásinna að
hugsa sér, að þessi rit séu aðeins lesin af ræktarsemi við
góða og gengna lærifeður. Þau eru þvert á rnóti snar þáttur
í vitund og baráttu tugmilljóna manna — og höfða enn til
hvers þess, sem les þau af alvöru og íliygli. — Hér skal ekki
reynt að leysa úr þessu verkefni til neinnar hlítar, enda
sjálfsagt margþættar ástæður, sem hér hafa verið að verki.
Benda má á ýmsar sögulegar aðstæður, er hér hafa látið til sín
taka. Marx og Engels höfðu gagngerðari kynni af auðvalds-
þjóðfélaginu en flestir samtímamenn þeirra. Þeir dvöldu
báðir langdvölum í Englandi, liinu „týpíska" auðvaldsríki
þeirra tíma. — Atvikin höguðu því svo, að þeir urðu gagn-
kunnugir þeim þremur meginstefnum, sem mestan efnivið
lögðu í fræðikerfi marxismans, en það voru klassíska heim-
spekin þýzka, franski sósíalisminn og hagfræðikenningar
Smiths og Richardos. Þeir voru starfandi stjórnmálamenn
og kynntust flestum byltingum samtímans af eigin raun,
auk þess sem Marx rannsakaði sérstaklega frönsku bylting-
una miklu. En í slíku umróti og byltingum er það sem
undirdjúpin opnist, — og þeim, sem þora að skyggnast
þangað, veitist þá gleggri sýn um uppistöðu og ívaf. sög-
unnar. Auk þess hafði náttúran veitt þessum mönnum
báðum snilligáfu í vöggugjöf — og þeir alfræðingar í Ren-
sansa-stíl. Margt fleira mætti tína dl. En mér eru jafnan
hugstæðust tilsvör Marx í viðræðunum við Weitling, sem
getið var í upphafi þessara luigleiðinga. Það er þetta, að
þekking og ábyrgðartilfinning verði að fylgjast að, þessi
ástríðuþrungna fordæming á vanþekkingunni jafnt frá sið-
rænu pg vitsmunalegu sjónarmiði. Það er þessi samtvinnun
vitsmuna og siðgæðis, sem gerir skaphöfnina lieila og kveikir
saman vit. og vilja. — Slík hefur verið undirstaða allra stór-
virkja, sem unnin hafa verið fram að þessu. — Og að því er
til þekkingarinnar tekur, ])á var hún í augum Marx ekki