Réttur - 01.06.1948, Page 13
RÉTTUR
101
til liægri, livarf fyrir leiti, kom svo aftur í ljós, en innan
skamms gleypti heiðin hann fyrir fullt og allt.
Heimasætan í Móhúsum, Anna Jónsdóttir, stóð við eld-
húsgluggann, studdi hönd undir kinn og horfði á el'tir
bílnum. Um leið og hann hvarl', dimmdi yfir svip hennar.
og drungi haustdagsins þrýsti sér inn í vitund hennar. Um-
hverfið var allt í einu orðið þunglyndislegt og ömurlegt,
sveitin, bæirnir og túnin umhverfis þá, garðarnir, kýrnar.
Það vár sami tómleikinn yfir þessu öllu. Meira að segja
hann faðir hennar, sem kom haltrandi neðan túnið í vað-
málsbuxum og bættri nankinstreyju, var í augum hennar
aðeins sérgóður og leiðinlegur, rauðbirkinn bóndadurgur.
Framað þessu hafði hún þó borið tilhlýðilega virðingu fyrir
föður síntim. En sú dyggð hafði ekki yfirhöndina í sál lienn-
ar þennan drungalega haustdag.
Anna var rúmlega tvítug stúlka með viðfelldinn andlits-
svip, enda þótt hún væri ekki fríð sýnum. Hún var dul í
skapi og hversdagslega fátalaðri en gerðist um kynsystur
hennar. Máske var það vegna þessara lyndiseinkenna, að
hún var talin fremur greind? Eða máski var það einungis
vegna þess, að gamli sérvitri barnakennarinn hafði einu
sinni haldið því frarn? Hiin hafði aldrei dvali/.t langdvölum
utan heimilis foreldra sinna. En hana hafði langað 'mikið
til að komast í skóla, þó ekki væri nema einn vetrartíma. Og
hún hafði mikið hugsað um það, þó að hún liefði ekki rætt
það í alvöru við foreldra sína fyrr en um sumarið. Móðir
hennar hafði tekið vo’num betur undir málaleitun hennar,
þótt hún væri reyndar óánægð yfir, að dóttir sín skyldi ekki
lremur vilja fara í kvennaskóla, þar sem hún gæti lært eitt-
hvað til handanna, heldur en í alþýðuskóla. Það varð erfið-
ara að fá samþykki föðurins. Þetta myndi auðvitað hafa
talsverð fjárútlát í för með sér. Og þó að Anna ætti kannski
rösklega, sem þessu svaraði, inni hjá heimilinu, þá hafði
hann ekki gert ráð fyrir að þurfa að snara því út til þess arna,
ekki þarflegra en það var. Sjálfur hafði hann aldrei farið í