Réttur


Réttur - 01.06.1948, Page 14

Réttur - 01.06.1948, Page 14
102 RÉTTUR neinn skóla. Samt liafði að lokum verið afráðið, að hún færi í alþýðuskóla um haustið. Það liafði kostað hana no.kk- urt harðfylgi — harðfylgi, sem luin myndi ekki hafa beitt, nema vegna áeggjunar Valgeirs. Valgeir, Itann var einn af vegavinnupiltunum, sem nú héldu syngjandi leiðar sinnar yfir heiðina. Hann var skemmtilegur og vel geíinn piltur, og Anna var hrifin af honum, enda þótt hún vildi ekki einti sinni viðurkenna það fyrir sjálfri sér, þaðan aí síður fyrir öðrum. Hún var svona gerð, hún Anna. Aftui' á móti var Valgeir ekki minnstu vitund skotinn í Önnu, en honum líkaði vel að spjalla við hana. Bændunr sveitarinnar var ekki meira en svo gefið um þessa ungu vegavinnumenn. Sumir höfðu orð á sér fyrir kvensemi eða annan flysjungshátt, aðrir eitthvað annað. Þannig var til dæmis um þennan Valgeir. Á hans ráði var sá ljóður, að hann hvatti unglinga sveitarinnar leynt og ljóst lil þess að fara í skóla, alþýðuskóla’ eða hverja þá skóla, sem þeir ættu kost á að komast í. Að vísu álitu flestir í sveitinni, að menntunin út af fyrir sig væri góð; skólaveran mátti bara ekki hafa óheillavænleg áhrif á nemendurna. En reynslan halði því miður sýnt, að margir þeirra, sem í skólana fóru, komu ekki aftur í sveitina eða urðu þar lítt viðloðandi upp frá því. Það var hin alvarlega hlið málsins. Því álitu ýmsir, að skólarnir — alþýðuskólarnir engu síður — ættu drýgstan þáttinn í því að tæla ungmennin burt úr sveitinni. Slíkt væri þjóðhættulegt, og í augum slíkra xnanna var Valgeir nokkurs konar landráðamaður, því að hvað var það annað en landráð að stuðia að eyðingu sveitanna. Valgeir hafi verið einn vetur í alþýðuskóla, það var allt og'sumt. C)g hann sagði við Önnu: ,,Við. sem ekki höfum efni á að fara í framhaldsskólana, verðum að gera okkur alþýðuskólana að góðu. Þó að við lærum ef til vill ekki rnikið þar, þá víkkar það þó alltaf sjóndeildarhringinn, og við verðum hæfari til sjálfsnáms eftir eix áður.“

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.