Réttur - 01.06.1948, Side 21
RÉTTUR
109
hugsjón sósíalismans tilbúin að verða að veruleika á morg-
un. Það er hugsjónin borin uppi af þekkingu og staðfestu,
yljuð af skilningi og ást — hin óspillta hugsjón, sem aldrei
sópar né treður saur, aldrei lætur hið illa ræna auga sitt
ljómanum. Og nú þenst sjónarsviðið út eins og fyrir töfrum:
barnið í faðmi stúlkunnar er hin lifandi ósk, framtíðin,
kveðskapur hennar er ímynd listar og vísinda, steinninn
mikli í bæjarsundinu er bautasteinn alls afturhalds. — I
þessari litlu íslenzku sögu gömlu konunnár úr Rangárþingi
speglast öll veröld mannkynsins í dag, á hvaða tíma sem er.
Eg hef viljað rifja upp þessa þjóðsögu í dag, hér á helgi-
stað íslendinga, meðal þess fólks, sem nú vakir yfir málstað
Islendinga, vegna þess að það er sannfæring mín, að þessi
saga sé í þann veginn að rætast víðs vegar um heim. Ef við
lítum yfir heiminn nú, þá sjáum við að vísu hætturnar blasa
alls staðar við. Nátttröll auðvaldsins eys gulli sínu vestan um
haf, það fer með hótunum og fagurgala vítt um lönd, það
ærir og tryllir alla þá, sem tvíráðir eru og liikandi, það myrð-
ir vökumennina án afláts í Hellas, sjálfum helgidómi vest-
rænnar menningar, dauðateygjur j>ess munu enn valda ógn-
um og skelfingum.
En píslarvottarnir grísku láta ekki höfuð sín að úfyrir-
synju, fyrir hvert höfuð þeirra vinna kínverskir stríðsbræður
nýtt liérað, nýja borg. Yfir alla jörðina flæðir nú samvitund
fólksins eins ög afturelding, í hverju landi heims hvísla nú
gamlar konur þjóðsögu aldanna eða vögguljóði í eyru dá-
inna sona til brýningar þeim, sem eftir lifa. Öll þrá, öll ást
liðinna kynslóða stígur nú upp úr blóði og sorg með morg-
unsárinu og safnar glóðum elds að trýni kapítalismans,
Jressarar mannætu nútímans.
Og hugsjónin rnikla, stúlkan sem býðst til að vaka, sú
hin staðfasta, sú sem kann að svara l'yrir sig, sú sem aldrei
lítur við, sú sem svipti álögunum af gerzkri alþýðu fyrir
Jrrem áratugum síðan — hún hefur víða mikla sögu að segja
í dag. í hverju landinu á fætur öðru hefur hún kveðið tröllið