Réttur - 01.06.1948, Page 24
1 12
RÉTTLIR
íslénzkra króna. Ríkisstjórnin gat’ nt opinbera tilkynningu
í tilefni a£ þessu og neitaði því afdráttarlaust, að hún hefði
nokkra vitneskju um inneignir íslendinga erlendis. Fór
svo frarn um hríð. Næst gerist það, að Hermann Jónasson
gaf þær upplýsingar í ræðu, er hann flutti austur á Horna-
firði 30. maí, að íslendingar ættu miklar fjárhæðir erlendis
í dollurum og sterlingspundum, sem ríkisstjórninni væri
kunnugt um, og nefndi tölur í því sambandi. Stjórnarblöð-
in urðu liin æfustu og fullyrtu, að þetta væri tilhæfulaust.
— Nokkru síðar gaf ríkisstjórnin út tilkynningu, þar sem frá
j)ví er skýrt, að samkvæmt upplýsingum Alþjóðagjaldeyris-
sjóðsins eigi íslendingar 46 milljónir kr. í bönkum í Banda-
ríkjunum (30. júní 1947). Nú er það vitað, að þær upphæðir,
sem lagðar eru inn á banka, svo að segja á almannafæri, eru
aðeins lítið brot af því fjármagni, sem geymt er erlendis.
Nýjar öruggar stoðir liafa jsví runnið undir upplýsingar
Þjóðviljans. í fyrsta lagi er ríkisstjórnin staðin að ósannind-
um. Sjálf varð hún að gefa skýrslu um duldar fjárhæðir er-
lendis, sem hún hafði margsinnis lýst yfir, að hún hefði
enga hugmynd um. Ríkisstjórnin gat ekki lengur komið í
veg fyrir, að skýrsla Alþjóðagjaldeyrissjóðsins kæmi fyrir
almenningssjónir, og var því knúin til að birta hana. í öðru
lagi benda þessar opinberu upplýsingar ótvírætt til þess, að
mjög stórar fjárhæðir séu geymdar í Bandaríkjunum, eins
og Þjóðviljinn hafði áður skýrt frá og nefnt upphæðina
nákvæmlega. ■
Allt Jjetta ár hefur verið stöðugur straumur íslenzkra
manna til Ameríku. Eru |)að einkum þeir menn, sem á
stríðsárunum hafa átt mikil viðskij)ti við Bandaríkin, sem
Jjangað hafa átt erindi, og hefur ekki borið á öðru en þeir
liafi ráðið yfir nógum gjaldeyri, jmátt fyrir gjaldeyrisskort-
inn. Enginn efast um, að menn Jjessir hafi varið tíma sínum
vel til þess að kpma inneignum sínum örugglega fyrir. í
Jiessn starfi liafa Jjeir notið vináttu sinnar við ríkisstjórnina,
Jjagmælsku hennar og fyrirgreiðslu.