Réttur - 01.06.1948, Blaðsíða 28
116
RÉTTUR
þess að endurheimta efnahagslegt og stjórnmálalegt full-
veldi landsins.
Nokkru síðar tók ríkisstjórnin 2 milljóna dollara lán
sanrkvæmt samningi þessum, er einkum skal verja til fram-
kvæmda til hagnýtingar síldarinnar við Faxaflóa. Alþingi
liafði einróma samþykkt lántökuheimild í þessu skyni, og
var það skýrt tekið fram og skjalfest, að heimild þessi næði
aðeins til lántöku með venjulegum skilyrðum. Ríkisstjórn-
in lýsti því hátíðlega yfir frammi fyrir þingheimi, að ekki
kæmi til mála, að lán þetta yrði tekið samkvæmt skilyrðum
Marshalllaganna, enda taldi hún sér það með öllu óheimilt.
— Lántaka þessi er því lögleysa og stjórnarskrárbrot.
Vextir af láninu eru 21/0%. Munu það vera hæstu vextir,
sem nú tíðkast í lánssamningum ríkja á ntilli.
Ný lögbrot á Keílavíkurflugvelli
Mikla athygli hefur það vakið, að lnð ameríska félag, sem
annast framkvæmdir á Keflavíkurflugvellinum hefur þver-
brotið kaup- og kjarasamning Verkamanna- og sjómanna-
félags Keflavíkur og ákvæði íslenzkrar vinnulöggjafar. Bæt-
ist það ofan á öll fyrri lögbrot og yfirgang liins erlenda her-
námsliðs, að það er sýnilega staðráðið í því að hafa íslenzka
vinnulöggjöf og samninga íslenzkra verkalýðsfélaga að engu.
— Verkamenn í Keflavík liafa gert ítrekaðar tilraunir ti!
að fá þetta leiðrétt, en árangurslaust. Knda er afstaða þeirra
orðin erfið, þar sem stjórn félags þeirra, sem skipuð er Al-
þýðuflokksmönnum og hlítir fyririnælum Alþýðuflokks-
ins, hefur ekki aðeins sýnt sinnuleysi í málinu, heldur beim
línis dregið taum útlendinganna. Verkamenn Iiafa leitað
aðstoðar ríkisstjórnarinnar, en það hefur engan árangur
borið. Enda fullyrða fulltrúar Iiins erlenda félags, að gerð-
ur hafi verið samningur við fulltrúa ríkisstjórnarinnar, um
að bandarískar vinnureglur, en ekki íslenzkar, skuli gilda
á flugvellinum.