Réttur - 01.06.1948, Side 47
R É r I U R
135
Magnús Torfason, þá þingmaður ísfirðinga, sagði 15.
sept. 1917 í ræðu, þar sem hann mælti með þingsályktun um
skipun milliþinganelridar í fossamálum, en nokkrar nefndir
Alþingis fluttu þá tillögu sarnan:
„Netndirnar eru samniála um, að það sé skylda þingsius að taka
fossamáliö til rækilegrar íhugunar og gera allt, sem í þess valdi stend-
ur, til þess að þjóðin verði tilbúin að hagnýta fossaflið, þegar fc er
fyrir höndum."
„Hingað til hafa vötnin vcrið látin ráða rás sinni, hvort heldur
til böls eða hóta, og þeini hefur jafnvel fremur verið hjálpað til
þess að eyðileggja landið en notfæra gróðurafl.
En ini cru að verða straumhvörf í þessu efni . . .“ (Ræðumaður
minnir m. a. á Flóaveitu og fyrirhleðslu l'yerár.)
„Og þelta er oss öllum fagnaðarefni. En vér verðum samt að gæta
þess, að það stendur ekki alveg á saina, hvcr beizlar þau og temur.
Ef vér höldum ekki sjálfir í tauminn, getur af því orðið sá flaumur,
er sópar þjóðréttindum vorum og þjóðerni út í Ginnungagap er-
lends auðvalds, þangað, sem það á aldrei afturkvæmt úr.
Við þessu verðum vér fyrst og fremst að sjá. Og ég þykist vitg, að sá
íslendingur sé ekki til, er vilji láta þjóðina selja sálu sína, hversu
mikil fríðindi, setn í boði eru.“
Þannig mælti Magnús Torfason 1917.
Á þessu þingi höfðu komið fram tvö frumvörp um fossa-
mál.
Annað var fjutt í efri deild, um að leyla „Fossafélaginu
ísland“ að virkja Sogið. Flutningsmenn voru Eggert Páls-
son, Hannes Hafstein og Magnús Kristjánsson.
Hitt var flutt í neðri deild, um að ríkið hagnýtti sjállt
vatnsaflið, eitt eða í félagi við aðra og ríkinu einu væri_
heimil yfirráð og stjórn slíkra fyrirtækja. Flutningsmáður
þess var Bjarni frá Vogi.
Þingsályktunartillagan um fossanefndina var til komin
meðlram'vegna þessara frumvarpa. Var sú tillaga samþykkt
og í fossanefndina voru skipaðir: Bjafni frá Vogi, Guð-
mundur Björnsson, Guðmundur Eggerz, Jón Þorláksson og
Sveinn Ólafsson í Firði. Var Guðmundur Björnsson skipað-
ur formaður.
Fossanefndin klofnaði, og skiluðu báðir nefndarhlutar