Réttur - 01.06.1948, Side 49
RÉTTUR
137
inn svo dýrt, seni það sér sér fært. Alþýðan verður þá að borga
það garnan, sem þessar ágætu bjargvættir (!) hafa af stóriðjurekstri.
titlendinga hér á landi." (Meint til Sveins í Firði.)
Síðan heldur Bjarni áfram:
„Kn ef sérleyfislögin verða ekki samþykkt nú, hverjum er það
til góðs? Ekki ríkinu eða kjósendum almennt, né i Arnessýslu, heldur
einstökum bröskurum erlendum og þeim innlendum, sem búa með-
fram stóránum og hafa von um gróða í fossabraski. i’að er vitað mál,
að aldrei hefur verið liamast eins í fossalnaski og síðan milliþinga-
nefnd í fossamálum tók til starfa.
Og samþykki ekki þetta þing sérleyfislög og setji þannig skorður
við frekara braski, þá mun eftir nokkurn tfma ekki eitt einasta valn
vera óselt, og mun það. setn seit er, ekki aðeins verða metið á 12
milljónir króna, heldur á 100 milljónir króna. — Þessar vífilengjur,
ttm að sérleyfislög eigi ekki að samþykkja nú, eru því til þess eins fram
bornar, að' fossafélögin geti grætt sem mest á bralli því, sem þau
hafa haft hér í frammi, með því að senda hingað' leynilega setidi-
menn til þess að ginna þessa liluti út tir fáfróð’um mönnttm fyrir
smámuni. Það' er því til góðs þjónum þessara félaga, sem eiga hér
ba-ði heil blöð og venzlamenn, og nú er að sjá, að eigi suma þing-
menn Ifktt. Þetta er það, sem orsakar allt hatrið og allar skainnt-
irnar, sent dynja á okkur, meirihluta fossanefndar í blöðttm þessára
[ijóna erlendra attðkýfinga."
Svo mörg eru þessi orð Bjarna frá Vogi þann dag og
dugðu ekki til að knýja lögin fram. Frávísunartillaga Sig-
urðar frá Vigur var samþykkt 19. sept. með 17 atkv. gegn 4.
Móti voru: Jón Jónsson, Ben. Sv., Bjarni frá Vogi og Ólafur
Briem.
Þófið í fossamálinu liélt nú áfram næstu ár, tinz því lauk
á þingi 1923.
Ríkisstjórnin hafði þá lagt frumvarp um fossamálið fyrir
þingið. Hinn gamli meirihluti fossanefndarinnar, sem var
orðinn minnihluti í þingnefnd þeirri, er stjórnarfrumvarp-
ið fór til, var ákaflega óánægður með það stjórnarfrumvarp.
sökum þess að það gæfi eigendum fallvatnanna alltof mikið
vald.
Þeir Bjarni frá Vogi og Jón Þorláksson mynduðu minni-
hluta þennan, en Guðmundur Björnsson landlæknir, sem