Réttur - 01.06.1948, Side 54
142
RÉTTUR
eyrir er skipulega hagnýttur og þjóðin vill einbeita sér að
því að vinna þetta stórvirki.
2. Nægilega stórvirkar vélar, sérþekking og vinnuafl inn-
anlands til þessara framkvæmda.
3. Sterk verkalýðshreyfing, sem skapað hefur alþýðu góð
lífsskilyrði með harðri baráttu. Ætla má því, að hún reynist
alþýðu manna nægileg brjóstvörn til þess að bæta lífskjör
fjöldans og gera hann efnahagslega sterkari en áður og
bægja frá dyrum hennar þeirri kaupkúgun og eymd, sem
stóriðju auðvaldsins fylgir.
Hinu ber ekki að neita að hætturnar fyrir íslenzkt Jrjóð-
frelsi hafa líka aukizt síðan um 1920. En Jrað verður próf-
steinn ;i ríkustu kynslóð, sem Island liefur byggt, að hún
liafi manndóm til Jress að falla ekki fyrir Jreinr freistingum,
sem fátækari fyrirrennarar hennar stóðust.
Verður nú síðar í þessari grein rætt um aðferðirnar til að
uppfylla skilyrði Jressi.
III. Á hrakhólum einokunar og kreppna
Fyrsta kynslóð 20. aldarinnar fékk ekki reynsluna af er-
lendri stóriðju við kraft íslenzkra fossa, en hún hlaut reynsl-
una af stórrekstri í sjávarútveginum, togaraútgerðinni, og
rak sig einnig á, hvers konar erfiðleika ungur iðnaður og
ofurlítil raforkuframleiðsla liennar sjálfrar átti við að stríða
út á við.
Það er nauðsynlegt að rilja J)essa reynslu upp, — í stórum
dráttum, til Jress að þjóðin geti gert sér nokkra heildarmynd
af aðbúnaði þeim, sem stórstíg framfaraviðleitni lítillar
þjóðar á við að búa frá hálfu hinna drottnandi auðvelda,
ef slík þjóð ætlar sér að stíga markviss spor út úr nýlendu-
ástandi atvinnulífs síns til efnahagslegs sjálfstæðis og bættra
lífskjara.
Togaraútgerðin frá 1900 til 1916 var áþreifanlegasta