Réttur - 01.06.1948, Qupperneq 60
148
RÉTTUR
íslenzka þjóðin þarf að fá fullar upplýsingar um, livað
þarna er að gerast, því að sama sagan og liér er sögð af feiti-
hringnum endurtekur sig um alla aðra erlenda hringa, sem
arðræna íslenzka hráefnaframleiðendur.
Meðan danskir einokunarhringir arðrændu ísland, reikn-
aði Jón Sigurðsson forseti það út, hve miklu það nam í fé,
sem sú einokun rændi. Það er eftirtektarvert, að nú reýnir
ekki einu sinni neinn af íslenzku borgaraWokkunum að
reikna út, hvernig enskir einokunarhringar eða aðrir okur-
hringar liafa arðrænt Islendinga, heldur reyna þeir þvert á
móti að dylja þjóðina þess, hvernig arðránið fer fram. Og
það eru ekki aðeins hinir borgaralegu stjórnmálamenn, sem
bregðast þannig hagsmunum þjóðarheildarinnar gagnvart
öðrum þjóðum og forðast að feta í fótspor þess leiðtoga,
sem þeir tigna mest með vörunum, — heldur boðar sjálf
ríkisstjórn íslands beinlínis hvað eftir annað, að verðið,
sem íslendingar heimti af erlendu hringunum fyrir hráefni
sín, sé alltof hátt! Slíka afstöðu tóku einnig verstu dönsku
embættismennirnir forðum daga, þegar íslenzkum fram-
leiðendum fannst danskir einokunarkaupmenn arðræna sig.
(Nú skirrist íslenz.k ríkisstjórn ekki við að undirbjóða
erlenda keppinauta íslands, samtímis því sem hún segir, að
Íslendingar lieimti of liátt verð! Samanber síðustu síldar-
lýsissölu til Breta.)
Það er sem forustumenn borgaraflokkanna á íslandi ltafi
fyrir stríð og eftir stríð fyrst og fremst litið á það sem verk-
efni sitt að sætta íslendinga við arðrán erlendu hringanna
og beygja okkur undir ok þeirra, — en forðast allt, sem gat
heitið heildarbarátta þjóðarinnar gegn þessu arðráni og
hagnýting á góðri aðstöðu, hvenær sem lnin kynni að skap-
ast, til að bæta „kaup hennar og kjör“ út á við. Þess vegna
hafa þessir stjórnendur oft verið líkari „faktorum“ fyrir
erlent auðvald en forvígismönnum smáþjóðar, sem þurfti
að berjast fyrir hækkuðu vöruverði og elnaliagslegu frelsi
gegn voldugum auðhringum.