Réttur - 01.06.1948, Blaðsíða 66
154
RÉTTUR
IVorld Monopoly and Peace (Heimseinokun og friður) heitir bók eftir
James Allen, einn a£ forystumönnum bandarískra kommúnista, og kom
hún út í Netv York 194(i. Er |rar lýst ferli og valdi einokunarhringanna
(í býzkalandi, Japan, Brétlandi og Bandaríkjunum) og rakin áhrif þeirra
í innanlands- og utanríkisstjórnmálum. Er það mála sannast, að ókleift er
að gera sér grein fyrir heimsmálunum, nema að hafa nokkra hugmynd utn
liringavaldið og vélabrögð þess. Og sem við lesunt bók, skilst okkur, að hér
cr ekki um einber viðskiptamál að ræða, heldur líka um friðinn og lýðræðið
í heiminum.
D. N. PritL.Star spangled Shadow, London 1947 (Skugginn af stjörnufán-
anum). l’ritt er sem kunnugt er brezkur jringmaður vinstrisinnaður. í þessari
bók sinni rekur hann meginjrættina í sögu Bandaríkjanna, og einkum þó
tímabilið frá 1914 og til okkar daga. Hann ræðir kenningar Erumans og
Marshall-áætluna — og þau áhrif, sem sú stcfna muni hafa, einkum jtó þá
hliðina, er að Bretlandi snýr. Er bókin hin jrarfasta öllum, sem vilji kynna
sér þessi mál.
A'. ’/.illiacus: Mirror oj llie Present (Skuggsjá nútímans), London 1947.
Ymsir munu kannast við höfundinn, sem er brezkur þingmaður í vinstra
armi Verkamannaflokksins brczka. Hann hefur samið margar- bækur, sem
ekki verður getið hér, en jtetta er önnur bókin í bókaflokki, sent hann er nú
að skrifa. Hin fyrsta héitir „Mirror of the Past“ og fjallar um al|tjóða-
stjórnmál á 19. öld. Þessi bók fjallar líka um samskipti Jrjóðanna, en er
bundin við öldiriá og jró einkum 2—3 síðustu áratugina. Höfundur reynir
að gera grein fyrir megindráttunum 1 þessari framvindu, hann ræðir utan-
ríkisstefnu Bandaríkjanna og dvelur lengi við viðskipti Sovétríkjanna við
umheiminn og loks rekur hann nokkuð untanríkispólitík Breta og afleið-
ingar hennar. Er bókin einkar fróðleg. Höfundur lofar framhaldi í 2 bind-
um, er fjalli einkum um utanríkismál Breta, og verða Jrær bækur vonandi
ekki síðri.
Fræðirit um marxismann
Elestii íslenzkir sósíalistar munu kannast við rússneska marxistann G. V.
l’lekhanof og jafnvel hafa lesið einhver rit hans. Nýlcga hefur einni bók
hans verið snúið á ensku og kallast „In Defence of Materialism" (Til varnar
efnishyggjunni), og undirtitillinn: „The Developmenl of thé Monist View
itf History. Plekhanof skrifaði þessa bók sína 1895, og var henni einkum
stefnt gegn Narodnikunum (Þjóðarflokknum) rússnesku. Þar eru rakin
öll meginatriði í heimspcki- og söguskoðun marxismans og jafnframt vegið
á báðar hendur, gegn sjónarmiðum borgaranna og hinum ruglingslegu og
kratakenndu kennjtígum Narodnikanna. Stíllinn er fjörugur og skýr, iðandi
af skerpu og hnittni, svo sem I’lekhanof er lagið. Það er ójrarft að inala