Réttur - 01.10.1950, Side 2
242
RÉTTUR
Aðalatriðið í þessari yfirlýsingu, sem ég er kærður fyrir, er sú
staðhæfing, að það sé ekki „óháður og hlutlaus dómstóll“, sem
með rannsókn málsins hafi farið. Þessa staðhæfingu held ég fast
við og mun nú færa sönnur á, að hún hafi við full rök að styðjast.
Skal það strax tekið fram, að sú ásökun mín, að dómstóllinn sé
„ekki óháður og hlutlaus" er ekki borin fram „á ótilhlýðilegan
hátt“ og er það viðurkennt af setudómara, svo ekki kemur til
greina að dæma mig samkvæmt síðari málsgrein 108. gr. XII. kafla
refsilaganna. Mál þetta snýst því aðeins um það, hvort ákæra mín
á dómstólinn, sem í þessum orðum felst, sé rétt eða röng.
Þar sem mál þetta er því raunverulega ákæra frá minni hálfu
gegn dómstólnum, í þessu tilfelli sakadómara, og snýst um hin
veigamestu atriði, varðandi þjóðlíf vort og stjórnarfar, vil ég
byrja vörn mína með því að gera grein fyrir nokkrum grundvall-
aratriðum, sem ég byggi staðhæfingu mína á.
Dómvaldið er samkvæmt stjórnarskránni, 2. gr. og 59.—61. gr.,
óháð framkvæmdavaldinu og löggjafarvaldinu. Alveg sérstakar
ráðstafanir eru gerðar til þess í stjórnarskrá og lögum að tryggja,
að dómendur séu óháðir ríkisstjórnum og löggjöfum og hlutlausir
gagnvart þegnunum, „háum“ sem „lágum“. Með öllum þessum
ákvæðum á að tryggja jafnrétti þegnanna fyrir dómstólunum,, sem
er grundvöllur réttaröryggisins. Þegar um árekstra er að ræða
milli ýmissa þegna þjóðfélagsins annars vegar og sumra embættis-
manna þess eða valdhafa ýmissa hins vegar, ber dómaranum að
muna að báðir aðilar eru samkvæmt stjórnarskránni jafnrétt-
háir gagnvart honum. Ráðherrar, lögreglustjórar og aðrir valds-
menn geta jafnt gerzt brotlegir við lög sem aðrir þegnar þjóðfé-
lagsins og það er brot á skyldum dómarans að haga sér í rannsókn
sinni sem þeir væru upphafnir yfir allan grun um lögbrot, og
atferli þeirra þyrfti engrar rannsóknar við. Meira að segja þeir
menn, sem með dómsmálaráðherra-embætti fara, geta verið marg-
brotlegir glæpamenn, eins og dæmin sanna, ef minnst er þess
manns, er ráðherraembætti gegndi af Dana hálfu yfir íslandi um
síðustu aldamót. Það er því ótvíræð skylda dómarans að rann-
saka jafnt framferði yfirvalda: ráðherra og löggjafa, ef máli er