Réttur - 01.10.1950, Page 20
260
RÉTTUR
hjá ráðamönnum Bandaríkjanna og styrjaldaróttinn hjá öllum
almenningi.
Kóreustyrjöldin var þannig hinn gleðilegasti íengur íyrir stríðs-
gróðamennina í Bandaríkjunum. Fjárhagskreppan var farin að hafa
hinar geigvænlegustu afleiðingar þar í landi, iðnaðarframleiðslan
dróst saman og atvinnuleysi jókst. En nú hefur runnið upp gullöld
og gleðitíð — stjórnin leggur fram til hergagnaiðnaðarins milljarða
á milljarða ofan. Auðjöfrarnir minnast þess með vellíðan að þeir
græddu þrefalt meira á síðustu styrjöld en á beztu friðarárunum
fyrir stríð. Styrjöld er sjálf forsenda þess að hagur þeirra blómgist.
I.
AÐDRAGANDI KOREUSTYRJALDARINNAR
Öll afturhaldsblöðin á íslandi og raunar um allan heim hafa
klifað á því einum rómi að upphaf Kóreustyrjaldarinnar hafi verið
það að Norðurkóreumenn hafi ráðizt á Suðurkóreu með ofbeldi,
að Norðurkóreumenn hafi undirbúið þessa árás árum saman að
undirlagi Sovétríkjanna.
Þessu til stuðnings hefur ekki verið færð fram ein einasta
staðreynd. Eina röksemdin er sú að hrakfarir og niðurlæging
Suðurkóreustjórnar í upphafi styrjaldarinnar sýni bezt að ekki
hafi hún hafið átökin, heldur hinir sigursælu Norðurkóreumenn.
Eins og sýnt mun verða er þessi rökleiðsla röng.
Staðreyndir sem sanna að upptökin átti leppstjórn Banda-
ríkjanna í Suðurkóreu hafa verið birtar öllum heimi, og engin
tilraun hefur verið gerð til að hrekja þær á heiðarlegan hátt.
Hins vegar hefur verið reynt með miklum árangri að drekkja þeim
í flóði áróðurs og æsinga. Þessar staðreyndir skulu nú raktar hér í
stórum dráttum, og jafnframt skal skorað á íslenzku afturhalds-
blöðin að leita aðstoðar ráðgjafa sinna og yfirboðara á bandaríska
sendiráðinu til að véfengja þær með rökum.