Réttur - 01.10.1950, Side 24
264
RÉTTUR
að ráðast inn í Norðurkóreu og hernema hana ekki seinna en
í júlímánuði sama ár. Þessi áætlun er rakin í öllum meginatriðum
í fundargerðinni, og framkvæmdin er miðuð við víðtæka banda-
ríska hernaðaraðstoð, herskyldu allra Kóreubúa frá 18 til 45
ára aldurs, og síðast en ekki sízt forustu 10.000 herforingja
og liðsforingja sem í annarri heimsstyrjöldinni höfðu starfað i
japanska hernum.
Þessi formlega ákvörðun jók enn hinar opinberu stríðsæsingar.
8. marz 1949 hélt t. d. forsætisráðherra leppstjórnarinnar Li Bum
Sok, ræðu í hinum fasistísku stúdentasamtökum og lýsti yfir:
„Heiðruðu stúdentar. Vér höfuð ákveðið að framkvæma
almenna sókn norður á bóginn. Vér munum draga fána vorn
að hún á tindum Pjagusanfjalla ....“
Þessi ummæli voru birt í öllum blöðum Suðurkóreu, án þess
að yfirvöld bandaríska setuliðsins hefðu nokkuð við þau að athuga.
Enda hafði Roberts hershöfðingi tekið þátt í áætlununum frá
upphafi.
Bandarískrar aðsloðar leifað
í Seoul fannst annað athyglisvert skjal frá sama tíma, bréf
frá Syngman Rhee, sem hann sendi 10. apríl 1949 persónulegum
fulltrúa sínum í Washington, Tjo Bion Oka, en erindi hans í Banda-
ríkjunum var að flýta fyrir bandarískri hernaðaraðstoð. Eftir að
hafa rætt þetta erindi gefur Syngman Rhee sendiboða sínum eftir-
farandi fyrirmæli:
„Ég tel að þér eigið hreinskilnislega en í trúnaði að ræða
þetta ástand við ráðamenn Bandaríkjanna og meðal sam-
einuðu þjóðanna. í ýtrasta trúnaði eigið þér að skýra þeim
frá áætlunum vorum um að sameina Norður- og Suður-
kóreu. í raun og veru erum vér nú þegar reiðubúnir til að
framkvæma sameininguna, það er aðeins eitt sem skortir:
Vér höfum ekki nægileg vopn og birgðir."
í bréfi þessu segir leppforsetinn einnig frá störfum fimmtu her-
deildar sinnar norðan 38. breiddarbaugs: