Réttur - 01.10.1950, Page 44
284
RÉTTUR
fund til að ræða atburðina í Kóreu. Bandaríkin höfðu þannig hafið
hernaðarlega íhlutun á sitt eindæmi, utan sameinuðu þjóðanna.
Bandaríkin lögðu fyrir Öryggisráðið orðinn hlut. Og öll þátttöku-
ríkin voru fjárhagslega og hernaðarlega háð Bandaríkjunum og
þorðu ekki að malda í móinn.
En þetta hrökk ekki til. Þegar Öryggisráðið kom saman til
fundar þá um kvöldið var það ekki ályktunarfært. Það lagði
blessun sína yfir hernaðaríhlutun Bandaríkjanna án þess að hafa
til þess heimild í stofnskrá sameinuðu þjóðanna, þar sem tveir
fastir meðlimir Öryggisráðsins voru fjarverandi.
Kína og Öryggisráðið
Samkvæmt sáttmála sameinuðu þjóðanna verða allar mikilvæg-
ar ákvarðanir að njóta stuðnings hinna fimm föstu meðlima Ör-
yggisráðsins til að fá gildi. Þessir fimm föstu meðlimir, megin-
stoðir sameinuðu þjóðanna, eru Sovétríkin, Kína, Bandaríkin,
England og Frakkland. .
Frá því að Öryggisráðið var stofnað hafði fulltrúi Sjang Kaiséks
farið með umboð Kína. Þegar kínverska þjóðin hafnaði Sjang
Kaisék og hann gerðist sjóræningi á Taivan, var sjálfsagt mál
að fulltrúi kínversku alþýðustjórnarinnar tæki sæti í Öryggisráð-
inu. Að öðrum kosti gat Öryggisráðið ekki notið virðingar né
trausts í Kína og Asíu, og raunar hvergi, því samkvæmt eðli og
tilgangi sameinuðu þjóðanna eiga meðlimir Öryggisráðsins að
vera fulltrúar þjóða en ekki pólitískir safngripir.
Sovétríkin héldu fram þessu sjónarmiði allt frá því að alþýðu-
stjórnin í Kína tók við völdum 1949. í samræmi við það lýsti
fulltrúi Sovétríkjanna yfir því að ákvarðanir Öryggisráðsins hefðu
ekkert gildi á meðan prívatmaðurinn Sjang Tin-fu tæki ranglega
þátt í störfum ráðsins. Og þegar Kóreustyrjöldin hófst hafði Malik
ekki tekið þátt í störfum ráðsins síðan 10. janúar 1950.
Þannig voru tveir fastir meðlimir Öryggisráðsins fjarverandi.
Og prívatmaðurinn Sjang Tin-fu, fulltrúi sjóræningjans á Taivan,
sat sem fastast. Því Bandaríkin héldu hlífisskildi yfir Sjang