Réttur - 01.10.1950, Síða 70
310
RETTUR
sérstaklega. íslenzk stjórnarvöld hafa stig af stigi með Kefla-
víkursamningnum, marshallfjötrunum og þátttöku í hernaðar-
bandalagi Atlantshafsríkjanna hrakið ísland út á hina hættu-
legustu braut, fyrir hlutleysi þess, leigt undir herstöð hluta af
íslenzku landi og kórónað afglöp sín með því að fjötra íslendinga
í hernaðarsamtök verstu stríðsæsingaafla auðvaldsins. Slík stjórn-
arStefna er ósamrýmanleg sjálfstæði, hagsmunum og heiðri íslands
og felur í sér mikla hættu á tortímingu íslenzku þjóðarinnar, ef
ekki tekst að hindra nýja heimsstyrjöld og getur ekki leitt nema til
síaukins ófarnaðar.
Fundurinn lýsir yfir þeirri sannfæringu sinni, að ísland eigi
líf og velferð undir því, að friður haldist í heiminum og þessvegna
algera samstöðu með friðarhreyfingu heimsins. Hann mótmælir
þeim ósvífna áróðri, fyrir hernaði, sem rekinn er í borgarablöð-
unum og vítir harðlega fáránlegar ofsóknir og níðskrif, sem þau
hafa látið sér sæma um þá menn, sem með undirskrift sinni undir
Stokkhólmsávarpið hafa tekið málstað friðarins hér á landi og um
leið málstað íslands.
Fundurinn fagnar þátttöku fulltrúa af íslands hálfu á öðru
heimsfriðarþinginu í Varsjá og heitir á alla flokksmenn og ís-
lendinga af öllum skoðunum og stéttum að styðja af hugrekki,
einurð og eldmóði starf friðarhreyfingarinnar og hinar nýju mikil-
vægu samþyktir, sem annað heimsfriðarþingið hefur gert.
Friðurinn er íslands líf og heill.
Ástand og horfur um áramót.
Fyrir áramótin varð Alþingi áð horfast í augu við eftir-
farandi staðreyndir, eftir 9 mánaðg,r reynslu af „bjarg-
ráðum“ gengislækkunarlaganna: tJtflutningsverðmætið
hafði lækkað um röskan þriðjung frá 1948 og útflutningur
á ísfiski og freðfiski var að magni til talsvert minna en
þriðjungur af útflutningi s.l. árs. Ríkisútgjöldin hækkuðu
þrátt fyrir það, að niður var fellt ábyrgðarverð á bátafiski.
Dýrtíðin óx með ótrúlegum hraða. Almennur vöruskortur í
landinu, mikið og vaxandi atvinnuleysi og sumstaðar stapp-