Réttur - 01.07.1966, Page 19
Réttur
219
innlends afturhalds mun ekki takast að snúa við rás sögunnar.Komm-
únisminn — hugmyndafræði hins vísindalega sósíalisma — verður
ekki upprættur í Indónesíu. Hann er hlutlægt lögmál þróunarinnar,
og með reynslu á þjóðlegum og alþjóðlegum vettvangi er gefið fyrir-
heit um að Kommúnistaflokkur Indónesíu muni standa af sér alla
storma. Asamt öðrum frelsisunnandi öflum í landinu og með hjálp
verkalýðsins í öllum heiminum mun hann fyrir víst koma sigursæll
úr átökunum við samsæri heimsvaldasinna og afturhaldsafla gegn
indónesísku þjóðinni. Hann mun verða áfram sem hingað til for-
ustusveitin til verndar málstað byltingarinnar í Indónesíu og leggja
lið þjóðfrelsisbaráttunni annars staðar í heiminum, lýðræði, félags-
legum framförum og friði.
[Ofsóknirnar í Jndónesíu gegn kommúnistmn hófust í október s.l. með fang-
elsunum og fjöldamorðum. Erfitt hefur reynzt að fá öruggar fregnir af þeim
ógnum sem yfir landið hafa gengið og breytilegar tölur eru nefndar um þá
sem látið hafa tífið í ofsóknunum. Allar upplýsingar hníga þó í þá átt að
nokkur hundruð þúsund manns hafi verið drepnir. Hér skulu tilfærð örfá
dæmi úr þekktum borgaralegum blöðum erlendum.
Brezka daghlaðið Guardian hefur þetta eftir fréttaritara sínum í Djakarta
7. apríl s. 1.:
„Áætlaðar tölur um fjölda þeirra Indónesa sem hafa verið drepnir í blóðs-
úthellingunum eftir stjórnarbyltingartilraunina 30. sept. fara hækkandi eftir
því sem greinilegri fréttir berast frá fjarlægari stöðum. Einn af sendiherrum
Vesturveldanna telur 300 þúsund varlega áætlað, aðrir gizka á hærri tölur.
Ferðamaður þaulkunnugur á Bali og sem talar tungu innfæddra þar segir
frá fjöldaaftökum í mörgum þorpum. Embættismaður í Surabaja viðurkennir
um 200 þúsund aftökur á Balí sem hefur 2 milljónir ibúa.
Áætluð tala fallinna á Súmatra er 200 þúsund og á Java er svipuð tala
talin algert lágmark. Ef bætt er við þeim sem fallið hafa á Borneó, Súlawesi
og öðrum eyjum fer taian upp fyrir 600 þúsund ...
Það virðist augljóst að meirihluti þeirra sem fallið liafa séu saklaus fórnar-
dýr pólitísks ofsóknarhrjálæðis . ..
Víða í landinu hrönnuðust líkin upp í ám og fljótum og mynduðu stíflur ...“
Stórblaðið Times í London hirti 13. apríl frásögn fréttaritara sem var nýkom-
inn frá Indónesíu:
„Hámarkstalan sem ég fékk um fjöldamorðin hjá indónesískum hershöfð-
ingja var 150 þúsund, en ýmsir starfsmenn sendiráðanna telja að allt að 500
þúsund hafi verið drepnir ...“
New York Times birtir grein eftir Sulzberger 13. apríl:
„Einu grimmasta blóðbaði sögunnar er enn ekki lokið í Indónesíu. Fleira
fólki hefur verið slátrað hér undanfarna sex mánuði en allan tímann í styrj-
öldinni í Víetnam. Það er ekki hægt að nefna neinar öruggar tölur um fallna.
Mjög varkár sendiráðsmaður telur þá samtals 300 þúsund, aðrir nefna hærri
tölur.“]