Réttur - 01.07.1966, Blaðsíða 42
242
RÉTTUR
Hins vegar er það og verkefni Sósíalistaflokksins að taka þátt í
allri þeirri baráttu til sóknar og varnar, sem háð er meðan auð-
valdsskipulagið enn stendur^ og hafa eftir mætti áhrif á þróun
þess þjóðfélags.
Að miklu leyti fara þessir tveir þættir baráttunnar saman, þó
alls ekki ætíð í meðvitund fólks. Frá sjónarmiði sósíalista er hinn
síðarnefndi þáttur ætíð raunverulegur undirbúnángur og forsenda
hins, en hins vegar alls ekki frá sjónarmiði annarra, sem þó fylgja
verkalýðshreyfingunni og/eða þjóðfrelsishreyfingunni. Það þarf
að taka tillit til þessa skoðanamunar, er skipulag hreyfinga er á-
kveðið. Hins vegar er það og til, að svo rík áherzla sé lögð á hinn
síðari þátt, að höfuðhlutverkið: stefnan að sósíalisma ■— verði út-
undan ýmist í reynd eða meðvitund manna.
Skal nú vikið nánar að vandamálum þessum.
I. Sósíalistaflokkurinn og ófangarnir í barátfu
sósíalismans
Sósíalisminn sem stefna berst að visu fyrir þvi framtíðarþjóðfélagi, þar
sem fátækt og vanþekking, stéttakúgun og rikisvald, cr afnumið og frelsi,
jafnrétti og bræðralag mannanna tryggt, — en fjöldafylgi sósíalismans
sem hreyfingar á fyrri hluta þessarar aldar stafar ekki sizt af því að hann
var sú eina stjórnmálastefna, sem boðaði raunhæfa lausn þess vanda-
iríáls að tryggja almenningi atvinnu og brauð.
Það virðist nú svo, að skipta megi baráttunni fyrir sósíalisma
í áfanga, eftir því hvort sigur.inn fyrir atvinnu og brauði fæst með
sósíalisma og valdatöku alþýðu, — eða hvort sá sigur næst að
mestu innan auðvaldsskipulags og baráttan fyrir sósíalisma verð-
ur þá fyrst og fremst urn aðra þætti frjáls og fagurs mannlífs.
Skulu þessir tveir höfuðáfangar, er líklegt má telja að verði,
a. m. k. sums staðar hér á Vesturlöndum, íhugaðir nánar.
1. Baráttan fyrir atvinnu og brauði
Það var löngum hugmynd sósíalista, að það þyrfti sigur sósíal-
ismans til þess að tryggja atv.innu og brauð fyrir allan almenning.
Sú varð og reynslan í öllum þeim löndum, þar sem nú er verið að
koma á sósíalistísku þjóðfélagi.
Byltingin í Rússlandi var gerð undir forustu róttækustu sósíal-
istanna, kommúnista, tii þess að tryggja frið og jörð, atvinnu og