Réttur - 01.07.1966, Síða 63
kéttur
263
Nú er svo komið að fulltrúar og samtök borgarastéttarinnar, meira
að segja hér á lslandi, verða að játa þessar staðreyndir.
í blaði Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna (1.—4. tbl. 1966)
„Frost“ er birt grein þar sem m. a. eftirfarandi staðreyndir eru
viðurkenndar:
2% fyrirtækja viðskiplalífsins ráða 70—80% af heimsviðskipt-
unum. Ar frá ári vex þessum risafyrirtækjum fiskur um hrygg. —
General Motors er stærsta verzlunarfyrirtæki veraldar. Sala þess á
ári er meiri en 12 stærstu fyrirtækja Vestur-Þýzkalands. Sala þess
á bifreiðum er jafnmikil og framleiðsla allra bifreiðaverksmiðja
Efnahagshandalagsiandanna. — 100 félög í Bandaríkjunum ráða
60% hlutafjáreignar framleiðslufyrirtækja. —- Standard Oil í New
Jersey ræður yfir eignuin, sem nema 12.500 milljónum Bandaríkja-
dollara. — Síðan 1950 hafa 200 stærstu framleiðslufyrirtæki i
Bandaríkjunum eignast 2000 önnur fyrirtæki með samrunaaðgerð-
um. — Stærstu stálframleiðslufyrirtæki Vestur-Þýzkalands hafa
sameinast í stærstu stálframleiðslufyrirtæki í Evrópu. Þýzk, frönsk,
belgisk stórfyrirtæki renna saman í risahr.inga. — 25 bílaframleið-
endur sjá um 90% beimsframleiðslunnar á bílum. -— 1 Japan eru
yfir 500.000 félög, en 60% eigna þeirra eru í höndum 559 stærstu
félaganna.
Þróunin í auðvaldsheiminum er allsstaðar hin sama. Fáir ein-
valdskonungar drottna yfir atvinnulífinu og einn amerískur „keis-
ari“ yfir öllu saman. — Baráttan fyrir lýðræði í atvinnulífinu er
haráttan fyrir sósíalisma: að þjóðfélagið sjálft eigi hin voldugu
einokunarfyrirtæki, að samv.innuhreyfing hins vinnandi fólks og
sarntök verkafólksins ráði og stjórni fyrirtækjunum.
Bakhjarl fasismans í Suður-Afriku: bandaríska auðvaldið.
Sameinuðu þjóðirnar hafa fordæmt Suður-Afrí'ku. „Lýðræðis-
rikin“: Bandaríkin, Frakkland og England sátu lijá. Það er eins og
í dæmisögu Kr.ists um ríka unglinginn. Þessi ríki eiga of mikla pen-
inga þar, — eða réttara sagt auðhringirnir, sem ráða pólitík þeirra.
Gróði bandarísku auðhringanna af eignum sínum í Suður-Afríku
var sem hér segir: 1959: 43 milljónir dollara; 1960: 50 millj.;
1961: 61 milljón; 1962 72 milljónir dollara.
Alls reka 160 amerísk auðfélög fyr.irlæki í Suður-Afríku. Alls
er fjárfesting þeirra þar um 500 milljónir dollara. Aðeins á árinu
Í963 festi General Motors þar í landi 30 milljónir dollara, Ford 11
millj., Firestone 7 millj. og Goodyear 3 milljónir dollara. Mest er