Réttur - 01.01.1940, Síða 2
stendur heimsveldi sósíalismans utan viS styrjöldina,
að hálfu leyti Asiuveldi, aS hinum helmingnum Ev-
rópuriki, umvafið „vinarhótum" og ástleilni hinna
stríSandi stórvelda, en er þeim öllum enn óráSin gáta.
Styrjöldin, sem hófst i pólska anddyrinu fyrir rúmu
ári meS innrás PjóSverja er ekki lengur einkamál Ev-
rópu. Nýr heimsófriSur fer blóSugum fótum um allg
afkima jarSarkringlunnar. Engin mannvera fær um-
flúiS afleiSingar þessa stríSs, enginn fær séS fyrir, hvað
upp mun spretta úr ferli þess.
I.
Styrjöldin, sem nú geysar, er rökrétt framhald þess
heimsófriSar, sem lauk meS vopnahlénu 1918. FriS-
urinn, sem til var sáS í Versölum, hefur nú borið
ávöxt: nýja stórveldastyrjöld. Hlutverk stríSsaSilanna
eru þau sömu og þau áSur voru. Fýzkaland, mesta iSn-
aSarveldi Evrópu, og England, mesta nýlenduríki
heimsins, berjast enn á ný upp á líf og dauSa um
skiplingu heims og valda. AS vísu er mönnum talin
trú um, aS barist sé um frelsi og sjálfstæSi smárikj-
anna, um löghelgi gerSra sáttmála þjóSa i milli. Mál-
gagn AlþýSuflokksins íslenzka og hins brezka heims-
veldis sagSi fyrir skömmu, aS í Belgíu væri barist
um þaS, hvort einræSi eða lýSræði skyldi ríkja í álf-
unni. Fetta er gömul saga, sem dubbuS er upp i hvert
skipti sem þess gerist þörf. Okkur var sögS hún í
bernzku, þegar síga tók á siSara hluta heimsstyrjald-
arinnar 1914—18. Hermennirnir voru orSnir þreytt-
ir á striSinu. Peir tóku aS efast og hugsa. Hvorttveggja
er brot á heraga borgaralegra ríkja. „Hugsun, hvert
leiSir þú mdg?” sagSi Aanatole France, og hugsanir
hinna langþreyttu hermanna voru aS leiSa þá út úr
stríSinu. Þeir fóru aS efast um gagnsemi mannfórn-
anna og hugsa um orsakir striSsins og tilgang. Hinn
þungsvæfi, lúsugi og ólæsi bændaher Rússlands rumsk-
aSi fyrstur, og sneri vopnum sínum aS þeim inönn-
2