Réttur


Réttur - 01.01.1940, Side 15

Réttur - 01.01.1940, Side 15
Næsta ríkö, sem fór í víking eftir löndumi og mörk- uöum, var ítalía. kaö er einnig fátækt að hráefnum og þykist hafa veriÖ svikið um sinn hluta af ráninu, er íriðarsáttmálarnir voru gerðir. Og þetta er rétt að þvi leyti, að veslurveldin héldu ekki gefin loforð við ítalíu, er þau teygðu hana inn í heimsófriðinn. ftalía heíur aukið iðnaðarframleiðslu sína um 76% á árunum 1913 —29, og hún lagði undir sig Abessiníu til að fullnægja markaðs- og hráefnaþörf sinni og gróðursetja þar at- vinnuleysingja sína. Pýzkaland fór þvínæst al' stað. Pað átti að visu ekki neinn að.gang að löndum í öðrum heimsálf- um, en á tveirn síðustu árum hefur það skap- að Stór-Pýzkaland og lagt undir sig 7 þjóðlönd á meg- inlandi Evrópu. Það er mesta iðnaðarriki heimsins, na;st Bandaríkjunum, en telur sig þó til „öreiganna” meðal heimsríkjanna. Iðnaðarframleiðsla þess hefur á þessu árabili aðéins vaxið um 13%, en framleiðsla þess er svo mikil að magni, að það er eitt hið markaðsfrek- asta auðvaldsríki Evrópu. Auðvald Pýzkalands leysti pólitíska og atvinnulega kreppu sína með því að taka nazismann í þjónustu sína árið 1933. Alla stund síðan hefur það vígbúist af kappi og beislað hina feiknalegu framleiðsluorku sína í þjónustu vígbúnaðarins. Sem stendur reynir það að brjóta sér leið suður Balkan til Austurlanda og olíulinda Asíu, og því á það nú í stríði við hinn forna fjanda, Bretland. Hið aldraða og auðuga Bretaveldi, sem á hagsmuna að gæta á öllum höfum og heimsálfum, berst ekki f fyrsla skipti fyrir lífi sínu. Til þessa hefur það jafnan sloppið I'ífs af, oftast nær vaxið við hverja raun. En tækni okkar daga og breytt skilyrði í heimbúskapnum hafa gengið mjög nærri því, og hvernig svo sem styrj- öldinni lyktar, mun ekki fara hjá því, að það standi allmiklu snauðara eftir en áður. Iðnaði þess hefur á ár- unum 1913—29 hlutfallslega hrakað, eða hann hefur slaðið i stað. Tennur hins gamla ljóns eru þvi ekki eins 15

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.