Réttur


Réttur - 01.01.1940, Side 44

Réttur - 01.01.1940, Side 44
stúlkumar gefi þeim hýrt auga. önnur viðfangsefni þekk- ir formaður stærsta þingflokksins okkar ekki í sambandi við hertöku íslands. Ekki eru Islendingar alveg á flæðiskeri staddir, meðan þeir fela slíkum mönnum forsjá mála sinna. En enn eru ekki öll kurl komin til grafar. Fyrst eftir að hertakan var um garð gengin, neyddist rikisstjómin til að birta bréf brezku stjómarinnar til íslenzku stjórnarinnar. Brezka stjómin krefst þess í bréfinu að Island gerizt banda- maður Bretlands, og verði stríðsaðili. Um þetta var rætt á leynifundimum á Alþingi 9. apríl, sem þingmenn Sósíal- istaflokksins vom útilokaðir frá. Ekki verður betur séð á skrifum „Nýs lands” en Héðinn Valdimarsson hafi viljað ganga að þessu, enda þótti hann nú fullkomlega samkvæm- ishæfur á kærleiksheimilinu. Slík afstaða á sér aðeins for- dæmi í afstöðu erindreka Noregskonungs á 13. öld. En hinir vom litlu betri. Þeir leyndu þing og þjóð því „smáræði” að krafist var að Island gerðist stríðsaðili og að Bretar myndu hertaka landið einhvem daginn.. Svo er að sjá að þeir hafi samið við erindreka Breta um, að jafnframt því sem her- takan var undirbúin, skyldi verða opnuð leiksýning fyrir almenning, Island skyldi lýsa yfir sjálfstæði sínu, en her- tökunni skyldi, þegar þar að kæmi, vera mótmælt til 'mála- mynda, jafnframt því, sem innrásarherinn yrði boðinn vel- kominn til að njóta íslenzkrar „kurteisi”, og „gestrisni”. Það var nákvæmlega mánuður, sem ríkisstjómin fór með konungsvaldið í „frjálsu” landi. Þetta tímabil minnir mjög á hundadaga Jömndar konungs. „Hundadagarair” nýju vom notaðir til að undirbúa hugi manna undir hertökuna. Allt í einu var farið að dreifa út kynjasögum um að von væri á þýzkri árás. Hver heilvita maður sér nú hve mikil fjarstæða þetta var, á þáverandi stigi styrjaldarinnar, í landi, sem er umkringt af höfum, sem em á valdi brezka flotans. Það hefði verið sama og að kasta mönnum og verð- mætum til einskis í beina eyðileggingu. Herforingi, sem slíkt hefði gert, hefði hvergi átt heima nema á geðveikrahæli. Nú sjá menn til hvers refimir vom skomir. Reynt var að 44

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.