Réttur


Réttur - 01.01.1940, Side 49

Réttur - 01.01.1940, Side 49
sjálfstæði þessara tveggja síðastnefndu landa og heitið þeim aðstoð, ef á þau yrði ráðizt). 3) Sérstakur samningur skyldi gerður um hemaðarhlið málanna, þar sem tekið væri fram skýrt og skorinort, á hvem hátt hin gagnkvæma hemaðar- hjálp skyldi framkvæmd, ef til kæmi. , Hver einfeldningur sér, að þetta em þær minnstu og sann- .gjömustu kröfur, sem hægt var að gera, ef um varnarsátt- mála ætti að vera að ræða, en slíkan sáttmála þóttist brezka stjómin vilja gera. Afstaða sovétstjómarinnar í málinu er eins skýr og verið getur, og allur sá dularhjúpur, sem yfir þessum samningum hvíldi, meðan þeir stóðu, var því sann- arlega ekki frá sovétstjóminni. Ef gengið hefði verið að þessum einföldu og sjálfsögðu skilyrðum, þá hefðu samning- ar tekizt á stundinni, og annaðhvort væri engin styrjöld orð- in enn, eða Hitler væri gersigraður. Svona einfalt var málið :af hálfu sovétstjómarinnar. En samningar tókust ekki, af því að brezka stjómin vildi ekki ganga að þessum lágmarksskilyrðum, án hverra gagn- lcvæmt vamarbandalag gegn ofbeldi hefði verið hégóminn einn, eins og hver maður sér. Það er: Brezka stjómin vildi ekkert vamarbandalag við Sovétríkin. Sannanir fyrir þess- ari staðhæfingu er að finna í svo að segja hverju atriði i gangi þessara samninga, þó að hér sé ekki hægt að rekja það til hlítar. Það skal látið nægja að minna á eftirtaldar staðreyndir: 1) Af þeim 104 dögum, sem samningaumleitanimar stóðu (frá 15. apríl til 27. júlí 1939) notaði sovétstjómin aðeins 20 daga til að undirbúa og senda uppástungur sínar og til- lögur, svör og'gagntillögur, en brezka stjómin þurfti á 84 •dögum að halda. 2) Meðan á samningaumleitunum stóð, kom það oft fyr- ir í ræðum þeirra Chamberlains, Halifax og annarra ábyrgra brezkra stjómmálamanna, að í rauninni væri þeim kærast, ef til samninga við Hitler gæti komið, og er samningamir stóðu sem hæst, komu brezkir blaðamenn því upp, að Hud- son, viðskiptamálaráðherra Breta, hefði boðið Wohltat nokkrum, fulltrúa þýzku stjóraarinnar, sem staddur var í 49

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.