Réttur


Réttur - 01.01.1940, Page 55

Réttur - 01.01.1940, Page 55
I 1 samningatilboði því, sem Sovétríkin gerðu Finnlandi í fyrrahaust, fólst ekkert, sem skerti sjálfstæði Finnlands. Þetta viðurkenndu Finnar sjálfir um öll atriðin nema leig- una á Hangöskaga, en á því atriði strönduðu samningarnir. Þó var það ekki annað en viðbára. Enginn neitar því nú, að Finnar séu enn sjálfstæð þjóð, og hafa þeir þó orðið að ganga að stórum harðari skilmálum en farið var fram á í fyrra, meðal annars því, að leigja Hangöskaga. Vafalaust hefur sovétstjórnin ekki gert ráð fyrir því, að finnska stjómin væri svo fávís að neita að ganga að tillög- unum. Sovétstjórnin hefur eflaust treyst því, að málin leyst- ust á friðsamlegan hátt. Auðvitað hefði finnska stjórnin heldur aldrei farið að leggja til ófriðar við Sovétríkin út af þessu máli, ef vesturveldin hefðu ekki stappað í hana stálinu og heitið henni hernaðarhjálp, sem kom reyndar aldrei, þeg- ar frá eru taldar rausnarlegar vopnasendingar og fjárhags- aðstoð. Þegar nú finnska stjórnin neitaði kröfum sovétríkjanna, munu flestir geta viðurkennt, að ekkert stórveldi hefði látið þar við sitja, heldur tekið með valdi það, sem krafizt var, ekki sízt þar sem slíka nauðsyn bar til sem hér og með til- liti til þess, að finnska stjómin hafði alla tíð sýnt Sovét- ríkjunum fullan fjandskap og bmggað þeim banaráð í sam- vinnu við ýms stórveldi álfunnar. Hér skulu látnar liggja milli hluta þær staðhæfingar Rússa, að Finnar hafi í æsinga- skjmi byrjað á landamæraskærum, því að í því máli verður ekkert sannað að svo stöddu. Um þetta leyti var desembermánuður að hef jast — óheppi- legasti tími ársins til að hefja hemaðaraðgerðir. En mikið gat legið við, að vamir norðvesturlandamæranna væm tryggðar án tafar, því að svo hefði getað farið, að Þýzkaland og vesturveldin semdu frið og snem styrjöldinni sameigin- lega gegn Sovétríkjunum. Enginn vafi er á, að milli Þjóð- verja og bandamanna hafa átt sér stáð leynilegar stjóm- málaviðræður í vetur, eins og blómleg verzlun átti sér stað í allan vetur milli vesturveldanna og Þýzkalands, þrátt fyrir styrjöldina. 55

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.