Réttur


Réttur - 01.08.1971, Side 21

Réttur - 01.08.1971, Side 21
upp við að framkvæma fyrri áætlanir um samskóla, en Nixon stefnir að því leynt og ljóst að tryggja áframhaldandi valdaaðstöðu sína og Republikana með því að biðla til hvítra manna í Suðurríkjunum. Úrskurður hæstaréttar 1954, og ýmsar til- skipanir og lög, sem sett voru til að auka °g tryggja réttindi svartra borgara, urðu mjög til þess að ýta undir réttindahreyfingu blökkumanna, því að þeir vissu af gamalli reynslu, að formleg réttindi voru lítils virði, ef þeim væri ekki fylgt eftir í verki. Allmarg- ir úr hópi hvítra, einkum stúdentar gengu einnig til liðs við hreyfinguna. Hún hafði áð yfirlýstu markmiði að tryggja jafnrétti svartra nvrma við hvíta á öllum sviðum og til þess beitti hún friðsamlegum aðgerðum, svo sem fundahöldum, kröfugöngum og ýmsum öðmm ofbeldislausum aðgerðum. Einn helzti forystumaður mannréttindabaráttunnar á fyrra helming síðásta áratugs var Martin Lut- her King. Hann lagði jafnan megináherzlu á hina friðsamlegu baráttu, enda voru honum veitt friðarverðlaun Nóbels í viðurkenningar- skyni fyrir starf sitt. En hinir ungu og djörfu hugsjónamenn fengu brátt að reyna að þeirra beið hið mesta torleiði, og það ferða- iag, sem þeir höfðu hafið bjartsýnir og von- glaðir, gekk grátlega seint. Þeir fundu brátt að lítil stoð var í frómum og fögrum orðum forseta og ríkisstjórnar, er þeir mættu ofbeldi og lögleysum, og þeir sáu einnig að þrátt fyrir allt umtal um „herferð gegn fátækt'' og „velferðarþjóðfélag" beindu stjórnarvöld allri atorku sinni og fjármunum að öðrum við- fangsefnum sem þeim virmst hugleiknari, svo sem geimferðakapphlaupi, eflingu hers og lögreglu og síðast en ekki sízt að gereyð- ingarstyrjöld gegn fátækri smáþjóð í fjar- lægri heimsálfu, og þeir, sem ætlað var að vinna það verk, voru ekki sízt bandarískir blökkumenn. Carmichael Allt þetta ástand ásamt ýmsu öðru varð til þess, að inntak baráttunnar varð annað, markmiðin róttækari og aðferðirnar harðvít- ugri. Baráttusamtök blökkumanna höfðu komizt að þeirri niðurstöðu, að það stoðaði lítið að hafa góðan málstað, ef valdið skorti til að hrinda honum í framkvæmd. Norska skáldið Georg Johannesen hefur sagt: „God- het uten makt er en annen form for ondskap". I þessum orðum er fólginn mikill sannleikur. Það er ákaflega billeg afstaða að þykjast vilja smðla að framgangi hins góða, fagra og fullkomna, ef maður samrímis skirrist við að nota það vald, sem maður hefur, hinu góða málefni til framdráttar eða veigrar sér við að leggja fram sinn skerf í barátmnni um þá valdaaðstöðu, sem skipt getur sköpum um framkvæmd þess málstaðar, sem barizt er fyrir. Það varð ljóst þegar um miðjan þennan áratug, að baráttuhreyfingin gat ekki ein- skorðað barátm sína við einstök svið í þjóð- félaginu, hún hlaut að stefna að raunveruleg- 141

x

Réttur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.