Réttur - 01.08.1971, Blaðsíða 55
NEISTAR
Fornar yfirlýsingar
fá nýtt gildi
1934
„Fyrir tilstyrk hinna vinnandi
stétta, alþýðunnar til sjávar og
sveita, hafa völdin verið tekin af
herrum auðvaldsskipulagsins ís-
lenzka. Og hún vill að völdunum
sé beitt gegn þeim. Henni er orðið
það Ijóst, að hún á nú fyrir hönd-
um úrslitabaráttu fyrir atvinnu
sinni, frelsi og lífi og vill berjast
til þrautar undir forustu Alþýðu-
flokksins. Hún skilur, að ef hún
bíður ósigur i þessari baráttu, vofir
yfir henni ekki aðeins atvinnuleysi
og örbirgð, heldur einnig kúgun
um ófyrirsjáanlegan tíma. — Hún
veit, að ef sleppt er því tækifæri,
sem nú er fyrir hendi, meðan
stjórn lýðræðisflokkanna fer með
völdin í landinu, til þess að koma
nú þegar nýju skipulagi á allt at-
vinnulíf þjóðarinnar, samkvæmt
fyrirfram ákveðinni áætlun, er
miðaði að því að tryggja hverjum,
cem vinna vill, atvinnu, og leggja
þannig grunninn að nýju þjóð-
skipulagi í anda jafnaðar- og sam-
vinnustefnunnar með fullkomnu
lýðræði í stjórnmálum og atvinnu-
málum, þá bíða hennar sömu örlög
og alþýðunnar i þeim löndum, sem
nú eru ofurseld ofbeldis- og ein-
ræðisstjórnum auðvaldsins.
Fyrir því skorar 12. þing A,l-
þýðusambands Islands á flokka
þá, sem fara með völdin í land-
inu, að neyta valdanna til þess að
forða alþýðu þessa lands frá þeim
örlögum og heitir til þess fulltingi
þeirra mörgu þúsunda vinnandi
manna og kvenna, sem Alþýðu-
sambandið skipa, og öllu því harð-
fylgi, sem alþýðusamtökin hafa
yfir að ráða."
Samþykkt 12. þings Alþýðu-
sambandsins og Alþýðu-
flokksins I nóv. 1934.
1935
„Nú, þegar sú hætta vofir yfir
íslenzku þjóðinni, að hún glati
sjálfstæði sínu, ef ekki verður tek-
ið fram fyrir hendur hinnar drottn-
andi auðvaldsklíku, minnir Komm-
úmsíaflokkur Islands alla hina
starfandi þjóð á þá frelsisbaráttu,
sem islenzka þjóðin hefur háð
gegn erlendu kúgunarvaldi öldum
saman, á baráttuna á 15. öld gegn
enskum og þýzkum yfirgangi, á
baráttuna allt frá Jóni Arasyni til
Jóns Sigurðssonar og Skúla Thor-
oddsens gegn kúgun og áþján
danska auðvaldsins. Minnug þeirra
fórna, sem færðar hafa verið í
þessari frelsisbaráttu, mun ís-
lenzka þjóðin brennimerkja þá
menn, eem n j reka erindi erlends
auðvalds hér, sem varga í véum,
sem landráðamenn við islenzku
þjóðina, hvernig sem þeir skýla
sér undir þjóðernis- og sjálfstæð-
isgrímu. I trúnni á framtíð íslenzku
þjóðarinnar, þegar alþýðan sjáif
ræður landi sínu og nýtur auðlinda
þess, mun íslenzka alþýðan
vernda núverandi sjálfstæði lands-
ins og með valdatöku sinni gera
það að þeirri lyftistöng ve'megun-
ar og menningar, sem það getur
orðið."
Úr „Ávarpi til íslenzkrar al-
þýðu" frá 3. þingi Kommún-
istaflokks Islands nóv. 1935.
Orð og efndir
,,Það að koma á stöðugri launa-
og verðlagsstjórn í Ameriku myndi
kyrkja amerískt atvinnulíf ....
slikt væri, um það er ég sann-
færður, banabiti Bandaríkjanna
sem fyrsta flokks efnahagsveldi."
Nixon, 4. ágúst 1971
,,l dag fyrirskipa ég stöðvun
alls verðlags og alls kaupgjalds í
Bandarikjunum í 90 daga."
Nixon, 15. ágúst 1971.
O
„Gagnvart mestu verðbólgu í
sögu Bandaríkjanna sáum við um
það fyrst að binda enda á sífellda
aukningu verðbólgunnar og því
næst að stöðva hana alveg. Þetta
hefur okkur tekizt."
Nixon, 1. febrúar 1971.
„Verðbólgan rænir hvern ein-
asta Ameríkana. Þær 20 miljómr
Bandaríkjamanna, sem setzt hafa
í helgan stein og verða að lifa af
ákveðnum tekjum, verða sérstak-
lega hart úti.“
Nixon, 15. ágúst 1971.
o
„I þessari 20 mínútna sjón-
varpsræðu slnni hefur hann
fNixon) gert næstum allt, sem
hann hafði lofað að gera ekki, og
næstum allt, sem hann þóttist ætla
að forðast með þeirri efnahags-
stefnu, er hann áður rak.
New York Times.
175