Réttur - 01.08.1971, Blaðsíða 47
aðeins 6% íbúanna í Pakistan, vera eina ríkis-
málið. Bengalir í Austur-Pakistan hafa kraf-
ist þess að móðurmál þeirra, Bengali, sem
56% allra íbúa Pakistan tala, sé einnig við-
urkennt ríkismál. En yfirstéttir Vestur-Paki-
stan neita því og beita íbúa Austur-Pakistan
jafnt þjóðernislegri sem efnahagslegri kúgun.
Aðeins 15% embættismanna í Austur-Paki-
stan eru þaðan og aðeins 5 % hersins. I Aust-
ur-Pakistan býr meirihluti allra íbúa Pakistan,
en landsvæðið er aðeins sjötti hluti landsins.
Þeir framleiða 70% af útflutningnum en
meðaltekjur þeirra eru aðeins helmingur af
meðaltekjum Vestur-Pakistana. Yfirstétt
Vestur-Pakistan samanstendur fyrst og fremst
af 22 fjölskyldum einokunarherra, sem enn
eru í nánu bandalagi við bandaríska auð-
valdið.
Þegár ljóst var orðið hver afstaða íbúa
Austur-Pakistan var, lét einræðisherra yfir-
stéttarinnar í Vestur-Pakistan, Yahya Khan,
til skarar skríða. Hann hóf 25. marz einhver
ægilegustu fjöldamorð mannkynssögunn-ir
með árás hersins á alþýðu Austur-Pakistan.
Hundruð þúsunda manna hafa verið myrtar,
bæir brenndir til grunna, 7—10 miljónir
manna hafa flúið til Indlands. Þegar svona
var komið hóf frelsisher Austur-Pakistana
„Bengla Desh" skæruhernað gegn kúgurun-
um.
Blóðbað böðlanna Yahya Khan og Túkka
Khan hefur ekki hlotið eins almenna for-
dæmingu í heiminum og vera ber. Indland og
Sovétríkin hafa tekið afstöðu með Beng.la
Desh og gegn múgmorðunum. En Banda-
ríkin, sem alltaf hafa stutt einræðisherrana
í Vestur-Pakistan, styðja múgmorðingjana
einnig nú. Og Kína, sem annars hefur staðið
svo róttækt með byltingaröflum heims, ekki
sízt frelsisstríði nýlendnanna, lét nú hagsmuni
n'kisvalds síns, stórveldisins, ráða meir gerð-
um sínum en hugsjón kommúnistaflokksins:
frelsisbaráttu allra kúgaðra stétta og þjóða:
Kínverska stjórnin tók afstöðu með Vestur-
Pakistan.
Blóðbað fasistísku yfirstéttarinnar í Vestur-
Pakistan heldur áfram, en frelsisbaráttan líka.
Mujibar Rahaman, leiðtogi Awami-banda-
lagsins, situr í fangelsi með dauðadóm yfir
höfði sér. En Bangla Desh herðir skæruhern-
aðinn.
Byltingaröfl þjóðanna verða ekki til lengd-
ar kæfð í blóði. En alþýða þeirra landa, sem
geta látið til sín taka, á að mótmæla því
ægilega ódæði, sem hér er framið.
ANGOLA
Frelsisher þjóðfrelsishreyfingar Angola,
sem Agostinho Neto stjórnar, sækir sífellt á
og frelsar æ stærri hluta Angola undan ný-
lendukúgun Portúgala.
En portúgölsku fasistarnir herða nú á
grimdarverkum sínum. Þeir eyða uppskeru og
skógum með eiturefnum, — eins og Banda-
ríkjaher gerir í Víetnam. Hefur þeim tekist
að eyða um tveim þriðjungum allrar mais-
og maniokauppskerunnar, svo alvarlegar
matarskortur vofir yfir alþýðu. Samtímis
verða grimdarverk portúgölsku fasistanna í
hernum æ ógeðslegri: þeir skera eyru og
fingur af skæruliðunum og safna þeim,til þess
að sanna frelsishernum að Portúgalar séu til
alls vísir.
Það er Atlantshafsbandalagið, sem Portú-
gal er í, sem er stoð og stytta þeirra í nýlendu-
stríðinu. Frakkland, Italía, Vestur-Þýzkaland
og fleiri Nato-lönd byrgja portúgölsku fas-
istana að vopnum. En mótspyrnan vex líka.
I júnímánuði 1970 var haldið alþjóðaþing í
Róm til stuðnings frelsisbaráttunni í nýlend-
um Portúgala. Norðurlönd hafa tekið afstöðu
með frelsishreyfingunum. Island þarf að gera
167