Réttur - 01.08.1971, Blaðsíða 46
boðberar „frjálsrar verzluar" nýjan 10% inn-
flutningsskatt á helming allra innfluttra vara,
önnur lönd hóta verzlunarstríði.
Kostnaðurinn við þúsund erlendar her-
stöðvar, mútur til afturhalds um heim all-
an, blóðug árásarstyrjöld í Víetnam, allt er
þetta að kollkeyra efnahagslífið: A fyrsta
misseri þessa árs vantar 11 miljarða dollara
til að ná greiðslujöfnuði, — það er meira
en hallinn allt síðasta ár. Gullforði Banda-
ríkjanna í Fort Knox minnkaði úr 22,8
miljörðum dollara 1950 niður fyrir 10 milj-
arða nú. Samtímis eiga seðlabankar Efna-
hagsbandalagsins 31 miljarð dollara í gjald-
eyrissjóði (dollarar og gull). 1950 átm þeir
3 miljarða.
Það brakar í máttarstoðum auðvalds-
heimsins, Bandaríkjaher og -dollar. Raun-
verulega veit Nixon ekki sitt rjúkandi
ráð, stekkur úr einu í annað, kastar eins og
trúður kosningabombum: Mao í dag, doll-
ar á morgun. Og þetta eru mennirnir sem
ætluðu að kenna mannkyninu, hvernig ætti
að lifa og stjórna samkvæmt „The American
way of life", amerísku lífsvísunni.
CALLEY
ÞJÓÐHETJA?
Þegar Calley, bandaríski liðsforinginn, var
dæmdur fyrir morð á tugum varnarlausra
kvenna, barna og gamalmenna í Víetnam,
dundu yfir mótmælaskeyti og Nixon forseti
tók hann undir sinn verndarvæng. Það er
engu líkara en afturhaldið í Bandaríkjunum
vilji gera þennan morðingja að þjóðhetju
sinni.
Það minnir mann á það, sem gerðist í
Þýzkalandi forðum, er Horst Wessel var gerð-
ur að dýrlingi hins nazistíska Þýzkalands og
höfuð„ljóð" hans varð baráttusöngur þýzku
drottnaranna, en það byrjaði svo:
„Þegar gyðingablóðið af kutanum drýpur,
verður gott fyrir okkur að lifa."
Ilja Ehrenburg reit þá grein *) um þennan
mann, er nazistarnir hófu til skýjanna. Hún
endaði svo:
„Það er þeirra hetja, melludólgur, leirbull-
ari, morðingi, sem murkaði í skúmaskotum
og síðan var hafinn til skýjanna af gömlum
klámrithöfundi. Drottinn minn, hver og einn
velur sér hetjur, sem honum eru samboðnar."
BANGLA DESH
Þjóðir þær, sem byggja Austur-Pakistan,
sýndu það í kosningunum í desember 1970,
að þær fylkja sér algerlega undir merki sjálf-
stjórnar og róttækra umbóta. Þær veittu
Awami-bandaláginu, — sem öll róttæk og
þjóðfrelsissinnuð öfl landsins standa að, þar
með talinn kommúnistaflokkur Ausmr-Paki-
stan, — 167 þingsæti af 169 þingsætum,
sem eru í Austur-Pakistan, og þar með einnig
meirihluta á þingi Pakistan, þar átm 313
þingmenn að taka sæti ef það kæmi saman.
Arið 1954 sigraði svona samfylking líka í
Ausmr-Pakistan, fékk 290 þingsæti af 300,
átm kommúnistar þá 4 af þessum 290 sæmm.
En einræðisöflin í Vestur-Pakistan eyðilögðu
árangur þeirra kosninga með ógnarstjórn og
stóð auðvald Bandaríkjanna bak við þau í
því ódæði. Hið sama gerðist nú.
Raunverulega eru íbúar Austur-Pakistan
meðhöndlaðir sem nýlenduþjóð. Yfirstétt
Vesmr-Pakistan læmr Urdu,sem er móðurmál
*) Grein llja Ehrenburg: „Horst Wessel. Skáld-
mær.'ngur nationalsósíalista", birtist í Rétti 1933,
bls. 104—110.
166