Réttur - 01.08.1971, Blaðsíða 54
1. Ellilífeyrir og aörar lífeyrisgreiðslur al-
mannatrygginga hækkuðu um 20% jafn-
framt því sem tekin var í lög tekjutrygging
þannig að lífeyrisþegar sem ekki hafa at-
vinnutekjur fá 7.000 kr. í lífeyri á mánuði.
Þessi ráðstöfun var ákveðin með bráðabirgða-
lögum að tilhlutan Magnúsar Kjartanssonar
tryggingamálaráðherra.
2. Hækkaður hlutur sjómanna með því að
breyta skiptareglunum frá 1968. Þau 11%
af óskipm aflaverðmæti sem áður runnu í
Verðjöfnunarsjóð renna nú inn í skiptaverðið
og hækkuð laun sjómanna þar með og með
breytingum á fiskverði um 18—19%. Þess-
um ráðstöfunum var fagnað af sjómönnum
og útvegsmönnum um allt land, enda er út-
gerðargrundvöllur betur tryggður með þeim
en áður.
3. Ríkisstjórnin skilaði aftur þeim vísitölu-
stigum sem fráfarandi ríkisstjórn hirti. Var
vísitölustivunum skilað aftur með lækkun á
ýmsum lífsnauðsynjum (takmarkaðri niður-
fellingu söluskatts o. fl.), og niðurfellingu á
nefskatti, námsbókagjaldi, og lækkun sjúkra-
samlagsgjalda.
4. Hækkuð lán vegna kaupa á fiskiskipum
erlendis og innanlands líka. Þessi ráðstöfun
var gerð að tilhlutan viðskiptamálaráðherra
Lúðvíks Jósepssonar, en hann beitti sér einnig
fyrir breytingum á fiskverði, sem getið var
um í lið tvö hér á undan. Má í því sambandi
geta þess að Lúðvík hélt fundi með útvegs-
mönnum víðsvegar um landið vegna fyrr-
greindra ráðstafana og vakti það verðskuld-
aða athygli og ánægju útgerðarmanna.
Þess má ennfremur geta að í bígerð er á-
kvörðun um nýjar virkjanir í Tungnaá við
Sigöldu. Þá er á döfinni setning reglugerðar
sem felur í sér að sett verði hreinsitæki á ál-
verið. Unnið er að gerð frumvarps til laga
um framkvæmdastofnun ríkisins og að fleiri
málum sem lögð verða fyrir næsta þing.
174
KJARASAMNINGAR
Um þessar mundir er unnið að gerð nýrra
kjarasamninga á grundvelli þeirra yfirlýs-
inga sem ríkisstjórnin hefur gefið í kjara-
málum. Verður nánar greint frá þeim málum
hér í ritinu síðar.
Reykjavík, 5. september 1971.
Svavar Gestsson.
J