Réttur - 01.08.1971, Page 26
að setja saman nýjan óhlutdrægan kviðdóm
vegna þeirra miklu blaðaskrifa og umræðna,
sem málið hefði vakið. Hafa bæði hin á-
kærðu því verið látin laus.
Mál Angelu Davis, sem rekið er fyrir dóm-
stóli í San Rafael í Kaliforníu, er enn óút-
kljáð og sér ei fyrir endann á því. Mun til-
kostnaður ákæruvaldsins þegar orðin meira en
1 miljón dollara, enda þótt eiginleg máls-
meðferð sé naumast hafin enn.
Engu skal um það spáð hér, hvaða framtíð
bíður hinna svörtu hlébarða. Þeim hefur ekki
tekizt að móta neina samfellda heildarstefnu,
en pólitískar skoðanir þeirra hafa stöðugt
hneigzt lengra og lengra „til vinstri". Virðast
þeir einna helzt hafa pólitíska samstöðu með
þeim hópum marxleninista, sem sprottið hafa
upp á Vesturlöndum hin síðari ár og sem
hafa að leiðarljósi útleggingu Mao Tse-
tungs á kenningum þeirra Marx og Leníns.
Það hefur að sjálfsögðu torveldað samtökun-
um alla pólitíska stefnumómn, að leiðtogar
þeirra hafa ýmist verið í fangelsi eða í útlegð
og margir flokksmenn hafa fallið fyrir kúlum
lögreglunnar. Samtökin hafa greinilega van-
metið þá möguleika, sem „kerfið" hefur til að
þagga niður óþægilega gagnrýni og til að
kúga andófsmenn. Það hefur komið í ljós svo
ekki verður um villzt, að „pappírstígrisdýrið"
er vel tennt.
Stuðzt er við efdrfarandi heimildir:
Wiener Tagebuch, nr. 5 1970 og nr. 5
1971,
Der Spiegel, nr. 17 1970
Neue Zeit, nr. 31 1970.
Stokely Carmichael og Charles Hamilton:
Black Power.
Orientering, nr. 28 1970 og nr. 1 1971.
Newsweek, nr. 23 1971.
J