Réttur


Réttur - 01.08.1971, Qupperneq 43

Réttur - 01.08.1971, Qupperneq 43
Hvaða lærdóm hlýtur verkalýðurinn að draga af reynslunni um beitingu hins mikla valds síns og fjármagns? Þann að burgeisastéttin þurrki jafnóðum út megnið af ávinningum hans í kaupgjaldssamn- ingum ,ef hann ekki fylgi kaupdeilusigrum sinum eftir með auknu pólitísku valdi sínu, — og að burgeisastéttin noti fjármagn verkalýðssamtakanna sér til framdráttar og gróða og felli það í kaupmætti, þegar henni þóknast, af þvi verkalýðurinn fylgi «kki því faglega valdi, — er veitti honum aðstöðu til samninganna, er skópu honum fjármagnið, — eftir með stórauknu pólitísku valdi sinu. Allstaðar ber að sama brunni: Verkalýðurinn — það er verkamenn, starfsmenn, menntamenn, — verða að rísa upp til að taka for- ystu með þjóðinni, — verða að hafa þá þekkingu, það sjálfstraust og þá reisn, sem til þess þarf. Og verklýöshreyfingin hefur áður sýnt það, er hun leiddi þjóðina gegnum lifskjarabyltinguna og ný- sköpunina 1942—47, að hún hefur allar for- sendur til þess að gegna þvi forystuhlutverki, sem þjóðin nú þarfnast. Og hún mun sýna það enn er á reynir að einmitt hún og hún ein hefur hæfileik- ana til forystu í launabaráttunni og lífskjarabarátt- unni allri, í landhelgisbaráttunni og þjóðfrelsisbar- áttunni allri, og í þeirri þjóðlegu nýsköpun íslenzks atvinnulífs, sem nú er hin brýnasta nauðsyn, ef utlent auðvald á ekki að gleypa ísland á ný. En það er ekki aðeins þessi stétta- og sjálfstæðis- barátta, sem verklýðshreyfingin í ofangreindri merkingu þarf að taka forustu fyrir þjóðinni í: O Eigi það bezta úr islenzkri þjóðmenningu að lifa, — og þá fyrst og fremst það ,sem var undirstaða hennar, þegar hún reis hæst: manngildismat henn- ar, — þá verður verklýðshreyfingin að taka for- ystuna í sjálfri menningarbaráttu þjóðarinnar, sú hreyfing er felur í sér eða fylkir um sig öllum vinnandi og hugsandi mönnum þjóðarinnar: verka- lýðnum, starfsmönnum, menntamönnum, bændum. Sú ómenning, er nú sækir að kjarna þjóðmenn- ingar vorrar, manngildismatinu, — sú ómenning, sem fær fólk til að miða alit við peninga og gróða, °9 sýkir mannlífið með hræsni og skriðdýrshætti, — sú ómenning á rætur sínar að rekja til auðvalds- skipulagsins, sem gerir allt að verzlunarvöru, nianngildið að peningagildi. Sósialisminn, frelsisbarátta alþýðunnar, er hér á „Keisarar Þýzkalands og Rússlands og aðr- ir stjórnendur stórveldanna, vceru ekki hrœdd- ir og skylfu ekki eins og smágreinar í stór- viðri — fyrir fátœkum iðnaðarmönnum, dag- launamönnum og öðrum smælingjum — ef þetta væru aðeins lausingjar, sem hlaupið hefðu saman snöggvast til hagnaðar sér í svipinn, en væru siðspilltir menn og mennt- unarlitlir, tilbúnir að tortryggja hvor annan á morgun. Nei.-------En kynslóð, sem vinnur á dag- inn og ver öllum kvöldum sínum og litlu frístundum til þess að mennta sig og sínum litlu aurum til menningar sér og félags- nauðsynju, og ennfremur elur börn sín upp í því að vera sjálfum sér og félaginu trú og réttlát við alla. — Slíka menn óttast æðri stéttir og stjórnarvöld ríkjanna. Því að þeir vinna í lið með sér alla beztu og réttlátustu menn þjóðanna, og þeir munu erfa ríkið og völdin.” Þarsteinn Erlíngsson: Verkamannasamtökin. (Ræða í „Dagsbrún" 1912). islandi ekki aðeins valdabarátta vinnandi stéttanna til þess að tryggja að þjóðfélaginu verði stjórnað í þeirra þágu, eigi aðeins sjálfstæðisbarátta ís- lenzkrar þjóðar fyrir þvi að hún ráði sjálf og ein landi sinu en ekki erlent auðvald og hervald, — heldur er hún líka menningarbaráttan gegn ómenn- ingu og spillingu auðvaldsins, baráttan fyrir því að endurreisa manngildið sem aðal islenzks mannlífs: reisn hins vinnandi manns sem foringja mannfé- lagsins. Hugsjón sósíalismans hefur áður orðið slikur aílgjafi islenzkum bókmenntum að reisn þeirra hefur aldrei orðið meiri. Sósialisminn þarf, endur- nýjaður sjálfur, að verða þeim slíkur aflgjafi á ný, þegar til úrslitaátakanna kemur um tilveru og ný- sköpun íslenzkrar manngildismenningar. 163

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.