Réttur


Réttur - 01.08.1971, Page 52

Réttur - 01.08.1971, Page 52
INNLEND víðsja ALÞINGISKOSNINGARNAR KOSNINGARÚRSLITIN í HEILD — INNAN SVIGA ÚRSLIT KOSNINGANNA 1967 Alþýðuflokkur ........................ 11.020 (15.059) 6 ( 9) 10.5% (15.7) Framsóknarflokkur .................... 26.641 (27.029) 17 (18) 25.3% (28.1) Sjálfstæðisflokkur ................... 38.169 (36.036) 22 (23) 36.2% (37.5) Samtök frjálslyndra ................... 9-445 5 9.0% Alþýðubandalag ....................... 18.055 (16.923) 10 (10)1 * 3) 17,2% (17,6) Framboðsflokkur ....................... 2.109 0 2,0% Á kjörskrá voru ................... 120.340, Þar af kusu 106.771 eða 88,7%. BREYTING Á ÞINGMANNATÖLU FLOKKANNA Fyrir kosningarnar höfðu þáverandi stjórn- arflokkar 32 þingmenn. Flokkarnir töpuðu fjórum þingmönnum samanlagt, Alþýðu- flokkur þremur, en Sjálfstæðisflokkur einum. Alþýðubandalagið og Samtök frjálslyndra unnu þessa þingmenn og áð auki einn þing- mann af Framsókn. Framsókn hafði áður 18 þingmenn, en hefur nú 17. Er gengið var til kosninga hafði Alþýðubandalagið sjö þing- menn, og bætti því við sig þremur nýjum þingsætum í kosningunum. Samtök frjáls- lyndra bættu við sig þremur þingsæmm, og 1) Taflan gefur þannig útbúin ekki rétta mynd af fylg- isbreytingum Alþýðubandalagsins því í henni er stuðzt við þær tölur er lögð voru saman atkvæði G-list- ans og I-listans í kosningunum 1967 auk þess sem notuð er sanxa þingmannatala og fékkst með saman- lagðri atkvæðatölu G + I, en undir lok kjörtímabilsins var þingflokkur Alþýðubandalagsins 7 manna eftir að Hannibal og Björn höfðu stofnað sérstakan þingflokk utan um sig og Karl Guðjónsson var utan flokka. mismunurinn sem þá fæst, einn maður, er þingmaður utan flokka, sem bauð sig fram fyrir Alþýðuflokkinn á Suðurlandi og féll í kosningunum. Þannig hafa núverandi stjórn- arflokkar, 32 þingmenn gegn 28 eins þing- manns meirihluta. MESTU UMSKIPTI I ÞRJÁ ÁRATUGI Kosningaúrslitin í kosningunum 13. júní eru mestu umskipti í kosningum hér á landi í nærfellt þrjá áratugi. Viðreisnarstjórnin misti meirihluta sinn eftir meira en áratugs- valdaferil; kjörfylgi hennar hrapaði úr 53,2% atkvæða í 46,7%, en það er hlut- fallslegt tap um rúmlega 10%. Og eins og fyrr er sagt töpuðu stjórnarflokkarnir fjórum þingsætum — raunar fimm ef Karl Guðjóns- son er meðtalinn. Sjálfstæðisflokkurinn hlaut minna fylgi en nokkru sinni í fjóra áratugi og Alþýðuflokkurinn galt enn meira afhroð. 172

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.