Réttur - 01.04.1973, Page 9
ar. Ætla má, að herinn væri farinn fyrir 10
árum, ef slík stjórn hefði setið að völdum
á árunum 1960—63, þegar Samtök hernáms-
andstæðinga störfuðu sem ötulast. Nú reið á
að hafa auga með því, að þessi nýja stjórn
framfylgdi því, sem hún hafði heitið. Það
kom líka fljótlega í ljós, að full þörf kynni
að verða á slíku aðhaldi. Háskólastúdentar
helguðu 1. desember 1971 baráttunni fyrir
brottför hersins. Hinsvegar gáfu íhaldsstúd-
entar út hernámssinnað blað, þar sem þrír
þingmenn stjórnarflokkanna létu í það skína,
að áðurnefnt ákvæði stjórnarsáttmálans væri
ekki eins ótvírætt og orðin benm til. Hér var
þó ekki um neinar fullyrðingar að ræða, en
greinilegt var, að nokkrir menn vildu þreifa
fyrir sér um það, hversu fast þetta málefni
væri kjósendum þeirra í hendi.
STARF SAMTAKANNA
Fyrsta verkefni Samtakanna var baráttu-
ganga frá Hafnarfirði til Reykjavíkur hinn
11. júní, sem lauk með 7 þúsund manna úti-
fundi í Lækjargötu. Þetta var einskonar liðs-
könnun. Eftir það unnu nokkrir starfshópar
að könnun á ýmsum hliðum herstöðvasamn-
ingsins, og má sjá afraksmr tveggja þeirra í
1. hefti Samvinnunnar 1973. Samtökin héldu
ráðstefnu hinn 2. og 3- desember í samvinnu
við 1. des. nefnd stúdenta, og sóttu hana
nokkur hundruð manns. Onnur ráðstefna
var haldin 13. og 14. janúar s.l. og fjallaði
hún einkum um skipulagsmál. Helztu nið-
urstöður hennar voru þessar:
a) „Markmið Samtaka herstöðvaandstœð-
inga er afnám herstöðva á Islandi. Samtökin
stefna að þvi að sameina til starfa alla þá,
sem vilja vinna að þessn markmiði. Baráttn-
aðferðir og röksemdir einstakra hópa geta
verið mismunandi, og má slíkt ekki verða til
sundurþykkis."
b) „Æðsta vald í málefnum Samtaka her-
stöðvaandstœðinga er þing, sem miðnefnd
boðar til. — Miðnefnd samtakanna, sem nú
starfar, skal starfa áfram til vors. — Mið-
nefnd skal kveðja til starfa í nefndinni full-
trúa hverfa í Reykjavík og kaupstaða suð-
vestanlands. — Miðnefndin skal kjósa 5—7
manna framkvœmdanefnd, sem sé jafnframt
kjördæmisnefnd fyrir Reykjavík. — Mið-
nefndin skal beita sér fyrir stofnun 7 sjálf-
stæðra kjördœmisnefnda, sem sendi fulltrúa
á miðnefndarfundi, þegar þvt verður við
komið. — Starfshópar verði myndaðir á
grundvelli svceða, hverfa, og ákveðinna verk-
efna."
Þess ber að geta, að núverandi miðnefnd
var kjörin á stofnfundi Samtakanna fyrir
u.þ.b. ári. Þegar þetta er ritað hafa verið
myndaðar kjördæmisnefndir á Austurlandi, í
Arnessýslu, Borgarfirði, á Isafirði og Akur-
eyri, en fleiri eru í undirbúningi.
Málin standa nú þannig, að utanríkisráð-
herra telur sig hafa lokið könnunarviðræðum
sínum við Bandaríkjastjórn í janúarlok og
hefur afhent samráðherrum sínum og utan-
ríkismálanefnd Alþingis skýrslu um þær. Frá
hans hálfu virðist ekkert því til fyrirstöðu, að
klukkan verði sett af stað og 6 mánaða end-
urskoðunartíminn hefjist, nema fram komi
krafa um hið gagnstæða í ríkisstjórninni. Sú
ákvörðun gæti þó dregizt, nema ráðherrar og
alþingismenn fái að heyra frá fylgismönnum
sínum, að þeim sé þetta nokkurt kappsmál.
Það verður seint nógsamlega brýnt fyrir
hinum almenna eða óbreytta kjósanda, að
hann þarf engan veginn að vera áhrifalaus
eða óvirkur á milli kosninga. Það er einnig
mikill rangskilningur, að samþykktir félaga
og frjálsra samtaka séu einskis metnar né eftir
þeim tekið. í þessu máli mætti jafnvel svo
73