Réttur - 01.04.1973, Síða 27
Verkamenn hlýða ekki konungsboði.
vinnu samkvæmt fyrirskipun verkstjóra, en
eru þegar í stað hindraðir í því."
Og upphafi slagsins lýsir Jón svo á sama
stað:
„Kl. 1 eftir hádegi er Torfunefsbryggjan
aftur orðin troðfull af fólki. Og brátt eru öll
skip, stór og smá, sem þannig liggja, að það-
an megi sjá, hvað gerist á bryggjunni, þétt-
skipuð fólki......Að maður ekki gleymi
húsaþökum og götum, sem einnig eru krökk
af áhorfendum.......
Ekki er klukkan mikið yfir 1, þegar bæj-
arfógetinn, sem nú er kominn á staðinn með
mikið og frítt föruneyti, kveður sér hljóðs.
Er hann nú, eins og í Krossanesi forðum,
með bók mikla í hendi og les upp úr henni
áður kunna klausu: „Vér ... af guðs náð
konungur Islands og Danmerkur, Vinda og
Gauta" o. s. frv. Vill hann með þessu sanna
verkafólkinu, að það sé á háskalegum vegi,
er það fylkir sér hér saman til að verjast
kjararýrnun með mætti samtakanna."
Átökunum, er verkamenn ekki hlýða því
að fara, lýsir Jón svo:
91