Réttur


Réttur - 01.04.1973, Page 31

Réttur - 01.04.1973, Page 31
Andreas Papandreou V aldaránið 1 Grikklandi [Andreas Papandreou var ráðherra í þeirri stjórn Grikklands, sem herforingj- amir steyptu með samsæri 1967. Hann er nú leiðtogi grískrar frelsishreyfingar (PAK), en vinnur sem prófessor í hag- fræði við York-háskólann í Toronto. Hann flutti fyrirlestur um yfirtöku Bandaríkj- anna við Stanford háskólann í febrúar 1972 og birtist hér útdráttur eða endur- sögn byggð á því erindi, mjög mikið stytt. Erindið birtist í ameríska tímaritinu ..Monthly Review".] Hið kalda stríð, afskipti Bandaríkjanna af öðrum ríkjum hvar sem er í heiminum, byrja í Grikklandi 1947 og síðan í Tyrklandi. Truman-stjórnin hóf íhlutunina í Grikk- landi, þegar Bretland bað hana um að taka við af sér sem verndarríki Grikklands. Þessi íhlutun Bandaríkjanna var gagnbylt- ingarsinnuð í eðli sínu. Hver urðu örlög Grikklands í kalda stríð- inu? Vinstri öfl Grikklands töpuðu í borg- arastyrjöldinni. Gríska ríkisstjórnin vann sig- ur með mikilli amerískri aðstoð 1949. Full- trúar Bandaríkjanna voru: Van Fleet hers- höfðingi, sem fékk æfingu sína í Grikklandi áður en hann fór til Kóreu, og Paul Porter hagfræðingur. Þessir tveir menn stjórnuðu Grikklandi. Bandaríkjamenn gagnsýrðu gríska ríkið á- hrifavaldi sínu. Gríski herinn varð í raun og veru hluti af ameríska hernum. Pentagon (bandaríska hermálaráðuneytið) hafði eftirlit með öllu sem gerðist. Tæki þess voru hern- aðarsendinefndin og „herráð" konungs. Þá var gríska „upplýsinga''-kerfið skipu- lagt af CIA (bandaríska njósnakerfið). Þegar ég varð ráðherra, var ég svo óheppinn að „upplýsinga"-þjónustan heyrði undir mig. Ég man að ég bað hershöfðingjann, sem við höfðum sett yfir þessa stofnun að láta stöðva hlustanir á símum okkar. Ég hélt að það væri þó að minnsta kosti hægt. Nokkru síðar kom hann og sagði mér að það væri ekki hægt og skýrði fyrir mér að því gríska CIA — eins og það var kallað í Grikklandí — væri bæði stjórnað og borgað — ekki eftir fjárlögum Grikklands, heldur beint af ame- ríska CIA. í lok sjötta áratugsins var gríska ríkið ekkert nema amerískt fylgiríki. Grikkland var orðið gott til fjárfestingar. Og fjárfest- ingin kom þar sem Tom Pappas var, en 95

x

Réttur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.