Réttur


Réttur - 01.04.1973, Qupperneq 36

Réttur - 01.04.1973, Qupperneq 36
ingasjóöur er nú um 1600 miljónir króna og til orðinn fyrlr kauphækkun um 4%, sem verkamenn gátu fengið, en kusu í framsýni sinni að láta leggja i þennan tryggingasjóð sinn. AFKOMUÖRYGGI Rétturinn til öruggrar afkomu, einkum þá á bjátar, er eitt af því, sem alþýða manna er langt komin með að tryggja sér og hefur stigið risa- skref I þá átt siðustu árin. Núverandi 70. gr. stjórnarskrárlnnar er sú, sem fátækraframfærslan með öllum hennar svívirðing- um byggðist á, þar með sveitaflutningar, sundrung fjölskyldna og svifting kosningaréttar, er styrk- þegar áttu i hlut.* Þessi grein á að falla burt. I krafti hennar hafa ómældar hörmungar verið leidd- ar yfir fátæklinga þessa lands, ekki sízt framt til 1934.** I stað gömlu groinargerðarinnar I anda fátækra- laga og sveitaflutninga ætti að koma ný 70. gr. t.d. orðuð eitthvað á þessa leið: „Hver maður á rélt á læknishjálp og ókeypis sjúkrahúsvist, þegar slys eða sjúkdóma ber að höndum. Hver maður á og rétt á slikum styrkjum úr almennum tryggingasjóðum, er slys, sjúkdóma, örorku eða ellj ber að höndum, að nægi honum til framfærslu. Sérstaklega skal tryggja rétt barna, mæðra og ekkna á sama hátt. Sá, sem ekki fær séð fyrir sér og sinum, á rétt á styrk úr almenn- um sjóði. Nánar skal ákveða öll þessi réttindi með lögum, en engan má svipta öðrum réitindum fyrir að njóta þeirra.“ * Núverandi 70. grein hljóðar svo: ,,Sá skal eiga rétt á styrk úr almennum sjóði, sem eigi fær séð fyrir sér og sínum, og sé eigi öðrum skylt að framfæra hann, en þá skal hann vera skyldum þeim háður, sem lög áskilja." Á niðurlagi greinarinnar, — hér með breyttu letri, — byggðust þrælalögin gegn styrkþegum. ** Sveitarflutningar og svipting kosningaréttar styrkþegar voru numin úr lögum eftir kosningarn- ar 1934. 100 JAFNRÉTTI TIL MENNTUNAR Hin gamla stjórnarskrá var hvað menntun al- mennings snerti miðuð við algert lágmark og enga olmenna skólaskyldu.* Eðlilegt væri að mannréttindaskrá alþýðu orðaði 71. grein stjórnarskrárinnar eitthvað á þessa leið: „Oll börn og unglingar á aldrinum 7 til 16 ára eiga rétt á ókeypis fræðslu, svo og yngri börn á aðgangi að vöggustofum og dagheimilum, er með þarf. Þeir, sem njóta viija framhaidsmenntunar og sýna til þess hæfileika og áhuga, eiga og rétt á ókeypis menntun. Tryggja skal efnahagslegt jafn- récti til menntunar með lögum." Ef til vill væri líka þörf á að hafa í stjórnar- skránni ákvæði um rétt og skyldu til menntunar og endurþjálfunar gagnvart fullorðnum, en oft er það svo að fyrst verður að berjast fyrir slikum réttind- um til að fá þau i lög og er þá stjórnarskráin siðar hið æðra, helzt óafturkallanlega stig slikrar tryggingar fyrir alþýðufræðslu. HERSKYLDA? Þá eru nokkur atriði i gömlu stjórnarskránni, sem nauðsynlegt er að afnema, til þess að hindra að nokkru afturhaldi geti tekizt að hagnýta þau í sina þágu eða annarra og setja í staðinn ákvæði, sem að gagni mættu verða. Þannig er það t.d. 75. gr. stjórnarskrárinnar. Hún hljóðar nú svo: „Sérhver vopnfær maður er skyldur að taka sjálfur þátt í vörn landsins eftir þvi sem nákvæmar kann að verða fyrir mælt með lögum." Herskylda er sem sé sett I stjórnarskrána af konungi og embættismönnum hans á sinum tíma, þó Islendingar hafi aldrei verið svo vitlausir að * Núverandi 71. grein stjórnarskrárinnar hljóðar svo: „Hafi foreldrar eigi efni á að fræða sjálf börn sín eða séu börnin munaðarlaus og öreigar, er skylt að sjá þeim fyrir uppfræðingu og framfæri af almannafé." I
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Réttur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Réttur
https://timarit.is/publication/319

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.