Réttur - 01.04.1973, Síða 48
MARX
OG
ENGELS
UM BYLTINGU
í RLJSSLANDI OG KÍNA
Byltingarmenn eru venjulega bjartsýnir og óþol-
inmóðlr og þarfnast vissulega mjög þeirra eigin-
leika, þrátt fyrir alla virðingu þeirra fyrir raunsæi
og óþægilegum staðreyndum, Þetta á líka við um
beztu byitingarleiðtogana, jafnvel sjálfa brautryðj-
endurna miklu Marx og Engels. En þó getur bylt-
ingin „brostið á" þegar þá minnst varir, jafnvel
komið hinum raunsæjustu þeirra að óvörum, eins
og sjálfum Lenín, sem af mestu viti, forsjálni og
tryggð hafði búið undir byltinguna í Rússlandi:
I janúar 1917 (9. eftir gamla keisaralega tímatal-
inu, 22. eftir því nýja) héit hann ræðu fyrir ungum
svissneskum verkamönnum i Zúrich í Sviss um
byltinguna í Rússlandi 1905 og ræddi síðan bylt-
ingarmöguleikana í Evrópu og var bjartsýnn, en
sagði af mikilli gætni undir lokin:
„Við, þeir gömlu, munum ef til vill ekki
lifa úrslitabardaga þessarar komandi byltingar. En
ég held að ég geti með fullu trúnaðartrausti látið
þá von í Ijós, að æskan, sem nú vinnur svo vel
fyrir hreyfingu sósíalismans í Sviss og annars-
staðar í heiminum verði þeirrar hamingju aðnjót-
andi að fá ekki aðeins að berjast, heldur og að
sigra i komandi byltingu verkalýðsins."
Mánuði síðar, í febrúar 1917, (marz eftir nýja
timatalinu), braust byltingin út í Rússlandi. — En
það eru ekki allir eins heppnir og Lenín þá.
Þeir Karl Marx og Friedrich Engels vonuðust
vissulega eftir þvi, einkum er þeir voru á þrítugs-
og fertugsaldrinum að verklýðsbyltingin myndi
byrja í brautryðjendalöndum kapítalismans, þar
sem verkalýðurinn var orðinn fjölmennastur og
sterkastur.
En þeir Marx og Engels fylgdust einnig vel með
þróuninni i ýmsum öðrum löndum, jafnt vexti
stóriðjunnar og þarmeð fjölgun og samþjöppun
verkalýðsins sem og andlegum og pólitískum
þroska sósíalistísku hreyfingarinnar. Þróunin í
Rússlandi vakti sérstaka athygli þeirra og báðir
læra rússnesku á efri árum til þess að geta fylgst
nákvæmlega með þvi, sem þar gerist. Það er því
fróðlegt að rifja upp nokkur atriði úr skrifum þeirra
í þessu sambandi:
112