Réttur - 01.04.1973, Side 73
mælaályktanir frá verkalýðssamtökum og
flokksfélögum.
21. marz: Birt er fyrsta niðurstaða úttekt-
ar sem tryggingaráðherra, Magnús Kjartans-
son, hefur látið gera á Tryggingastofnun rík-
isins. I Þjóðviljanum þennan dag og þá næstu
eru birtar niðurstöður úttektarinnar sem eru
hróplegt dæmi um ástandið í Trygginga-
stofnuninni — þar sem ráðdeildarskortur og
hreinræktuð spilling virðist hafa átt sér stað
um margra ára skeið.
21. maz: Nú hefur kjaradeila togarayfir-
manna staðið svo lengi að ekki verður lengur
beðið eftir að samkomulag náist. Enda er hér
í raun og veru um verkbann en ekki verk-
fall að ræða. Utgerðarmenn höfðu gert á-
kveðið tilboð á fyrri stigum deilunnar. Sjó-
menn töldu sér það ekki nægja og gerðu
annað tilboð. Ríkissjóður bauðst til að brúa
bilið og borga mismuninn. Samt neituðu
„togaraeigendur” að semja! Þá var að sjálf-
sögðu ekki um annað að gera en að grípa í
taumana — og var lokatilboð sjómanna lög-
bundið. „Togaraeigendur" ætluðu fyrst —
þrátt fyrir lögin — að þrjóskast við en þeir
snautuðu smám saman til þess að gera skipin
út. Togaraverkfallið í vetur varð almenn-
ingi öllum glögg heimild um það hversu
fráleitt er núverandi eignarhaldsform á tog-
urunum. „Togaraeigendur" eiga örfá og jafn-
vel innan við 1% í hverjum nýjum togara,
en þessir menn fá samt að binda skipin við
bryggjur mánuðum saman af einu saman
pólitísku ofstæki.
24. marz: Nú eru tveir mánuðir liðnir frá
því að gjósa tók í Eyjum og í nótt fóru 50
hús undir hraun. Ekki verður unnt í þetta
skipti í innlendri viðsjá að gera upp Vest-
mannaeyjamálin. Vonandi hafa línur skýrzt
betur þegar næsta hefti Réttar kemur út.
24. marz: Það kemur fram í viðtali við
Magnús Kjartansson í Þjóðviljanum, að við-
reisnin kastaði 240 milj. kr. á glæ með láðs-
mennsku sinni í Laxármálinu, er hún lét
eyða fé til undirbúnings framkvæmda sem
aldrei var lagaheimild fyrir.
26. marz Nokkrar húsmæður í Reykjavík
hafa bundizt samtökum um að mótmæla
vöruverði. Hávaðasamastar í þeim hópi eru
að vísu nokkrar íhaldsfrúr í borginni — en
hér er samt um að ræða vísi að nýrri athygl-
isverðri hreyfingu. En í fyrstu er hún mjög
einhliða og beinist nú aðeins að landbúnað-
arvörum. Þetta sárnar bændakonum austan-
fjalls og þær fjölmenna á þingpallana og
segja að það væri nær að hætta að kaupa
brezkar og vestur-þýzkar vörur en landbún-
aðarvörurnar íslenzku. Mótmæli sunnlenzku
kvennanna vekja mikla og verðskuldaða at-
hygli.
28. marz: Það kemur fram í fjölmiðlum
að gífurlegur skortur er á fólki til vinnu við
vetrarvertíðina. Er talið að aðeins í vertíðar-
vinnu vanti yfir 1000 manns. Þá er vitað að
verulegur skortur er á fólki víða annars stað-
ar — menn beri þetta saman við viðreisnar-
atvinnuleysið.
28. marz: Vélbáturinn Elías Steinsson, VE,
strandar við Suðurland og brotnar illa. Elías
er 16. báturinn sem eyðilegggst á þessari ver-
arvertíð. Margir menn hafa farizt í þessum
skipssköðum.
30. marz: Fyrsta eining hreinsitækja sett
upp í álverinu í Straumsvík. Forráðamenn
álversins beygðu sig fyrir þeim reglum sem
núorðið — frá í fyrra — gilda um hreinsi-
tæki í íslenzkum fyrirtækjum.
30. marz: Vinstri sigur í Háskólanum.
Kosið var í háskólaráð, tveir menn. Fram-
bjóðeridur vinstri manna fengu 722 — 727
atkvæði en hægri mennirnir 533 — 580 at-
kvæði.
3. apríl: Ofbeldisverk Bretanna og Vestur-
Þjóðverja eru í fullum gangi. I dag ráðast
137