Réttur - 01.04.1973, Side 77
Stolt íslands ætti að vera vopnleysið, styrkur
þess hlutleysið og friðlýst land.
Á hálfrar aldar afmæli 1. maí í Reykjavík,
gerir alþýðan kröfur til framtíðarinnar. And-
spænis mengun og tæknivæðingu iðnaðar-
þjóðfélagsins reisir hún kröfuna um, að mað-
urinn sé settur í öndvegi. I lífsgæðakapp-
hlaupi neyzlusamfélagsins má mannleg ham-
ingja ekki gleymast. Einsýni og meðal-
mennsku fjölmiðlunar verður verkalýðsstétt-
in að mæta með menntunarsókn — stytting
vinnudagsins að verða til þess að upplýst al-
þýða taki völdin. Gegndarlaus sóun verð-
mæta, vígbúnaður og mengun hafa sannað
okkur, að aukinn hagvöxmr færir hinum
vinnandi manni ekki meiri hamingju. Hið
stöðugt breikkandi bil milli ríkra og snauðra
sýnir, að hin vinnandi stétt verður að reisa
hærra hugsjón verkalýðsins um alþjóðlega
samhjálp. Þann 1. maí leggur reykvísk al-
þýða áherzlu á jöfnuð, mannúð og manngildi.
Hún minnir á þá skyldu vinnandi manns að
afmá félagslegt misrétti og andlegá niðurlæg-
ingu. Hið félagslega viðfangsefni framundan
er að reisa manninn í öndvegi — að skapa
það þjóðfélag, þar sem auður og völd lúta
hinum vinnandi manni."
í 1. maí nefnd
Fulltrúaráðs verkalýðsfélaganna
í Reykjavík
Gu8m. J. GuÖmundsson,
Helga Guðmundsdóttir,
Helgi Arnlaugsson,
Rúnar Bachman,
Jón Helgason,
Grétar Þorsteinsson,
Guðmundur Hallvarðsson.
ý Fjöldafundurinn 1. maí i Reykjavik.
INNRÁS
NATO-HERSKIPA
Laugardaginn 19- maí réðust þrjú brezk
NATO-herskip inn í íslenzku landhelgina.
Auk þeirra gættu fimm brezk „hjálparskip"
15 veiðiþjófa — m.ö.o. 8 herskip um 15
togara. Hann er dýr hver ugginn sem veið-
ist. Almenn mótmælaalda reis um land allt
og framkvæmdastjórn og þingflokkur Al-
þýðubandalagsins urðu fyrst pólitískra aðila
til þess að samþykkja mótmæli. Ályktun
framkvæmdastjórnar og þingflokks Alþýðu-
bandalagsins fer hér á eftir:
Framkvæmdastjórn og þingflokkur Al-
þýðubandalagsins kom saman til fundar 21.
maí. Þar var gerð eftirfarandi ályktun í til-
efni af innrás Breta í íslenzku landhelgina:
„Innrás brezka flotans í íslenzka landhelgi
s.l. laugardag er skýlaus hernaðarárás á ís-
lenzku þjóðina. Hernaðarofbeldi er nú beitt
gegn sjálfsákvörðunarrétti smáþjóðar. Al-
þýðubandalagið telur að Islendingar verði að
bregðast við þessum ofbeldisverknaði með
öllum tiltækum ráðum og leggur því áherzlu
á eftirfarandi:
1. Hernaðarárás Breta inn á íslenzkt lög-
sagnarsvæði verði kært fyrir öryggisráði
Sameinuðu þjóðanna.
2. Bretum verði tilkynnt að samningstilboð
íslenzkra stjórnarvalda í landhelgismálinu
standi þeim ekki lengur til boða.
3. Slitið verði stjórnmálasambandi við Breta.
4. Alþýðubandalagið bendir jafnframt á að
árás Breta er árás voldugs Atlanzhafs-
bandalagsríkis á minnstu bandalagsþjóð-
ina og framkvæmd eftir að öðrum banda-
lagsþjóðum hafi verið tilkynnt um yfir-
vofandi innrás. Engin ríkisstjórn „banda-
141