Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 1
STOFNAÐ 1913 42. TBL. 94. ÁRG. SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Sameiginleg
forsjá meginregla
Hvað segja fagaðilar um nýja tillögu
forsjárnefndar? | 10—11
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímaritið | Hjartabörnin í kassanum Þegar böndin bresta Nýja skikkjan
skólameistarans Út úr strætónum, hryðjuverkamaður! Atvinna | Finndu
rétta yfirmanninn Allir stóriðjukostir framkvæmanlegir
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
MÍKHAÍL Gorbatsjov, fyrrver-
andi aðalritari sovéska Kommún-
istaflokksins og leiðtogi Sovétríkj-
anna, er væntanlegur til Íslands í
haust. Tilgangur ferðar hans er að
minnast þess að 11. október eru 20
ár síðan leiðtogafundur hans og
Ronalds heitins Reagans Banda-
ríkjaforseta var haldinn í Höfða.
Gorbatsjov mun flytja hátíðarfyr-
irlestur í Háskólabíói þriðjudaginn
10. október.
Það er Einar Bárðarson tón-
leikahaldari sem stendur fyrir
komu þessa sögufræga nóbels-
verðlaunahafa og manns 9. áratug-
arins að mati tímaritsins Time,
sem jafnan er talinn hafa átt hvað
stærstan þátt í falli járntjaldsins,
hnignun kommúnismans og að
kalda stríðið leið undir lok. „Koma
Gorbatsjovs til landsins á þessu af-
mælisári verður ekki bara stórvið-
burður á íslenskan mælikvarða.
Þetta verður viðburður sem mun
örugglega fá athygli heimspress-
unnar,“ segir Einar, en þess má
geta að fyrirlestur Gorbatsjovs
verður sá fyrsti í röð fyrirlestra
sem Einar stendur fyrir undir
merkjunum „Stefnumót við leið-
toga“.
Fleiri leiðtogar væntanlegir
Fyrirlesturinn verður opinn öll-
um og hefst miðasala á næstu
vikum. Í fyrirlestrinum mun Gorb-
atsjov ræða um stjórnun á 21. öld-
inni, frið, sögulega þýðingu og
minningar sínar frá leiðtogafund-
inum í Höfða.
„Þetta er liður í smáútvíkkun á
starfseminni hjá mér,“ segir Einar
og tekur fram að það hafi verið
persónulegt áhugamál hjá sér í
gegnum tíðina að fylgjast með eft-
irtektarverðum leiðtogum. „Ég
hafði sjálfur tækifæri til að fara á
fyrirlestra sambærilega þessum
meðan ég var í háskólanámi í
Bandaríkjunum. Þar hafði ég tæki-
færi á að hlýða m.a. á Colin Powell,
Margaret Thatcher og Larry
King,“ segir Einar.
Spurður um val á fyrirlesurum
segir Einar stefnt að því að fá jafnt
stjórnmálaleiðtoga, leiðtoga á sviði
viðskipta sem og afreksmenn í
íþróttum til þess að halda fyrir-
lestra hérlendis. Segir hann allt út-
lit fyrir að haldnir verði tveir til
þrír slíkir fyrirlestrar hérlendis á
ári.
Gorbatsjov kemur á 20 ára
afmæli leiðtogafundarins
Morgunblaðið/RAX
Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi
leiðtogi Sovétríkjanna, heilsar
Ronald Reagan Bandaríkja-
forseta fyrir utan Höfða 1986.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Heilsast við Höfða
Róm. AFP. | Heilbrigðismálaráðherra Ítal-
íu, Francesco Storace, skýrði í gær frá því
að tveir svanir, sem fundust dauðir á Sik-
iley, hefðu drepist úr mannskæða afbrigð-
inu af fuglaflensu, H5N1. Grunur léki á að
afbrigðið hefði greinst víðar í landinu.
Grikkir sögðu einnig að þar hefði hættu-
lega afbrigðið greinst í dauðum svönum.
H5N1-afbrigðið hefur ekki fyrr greinst
í aðildarríkjum Evrópusambandsins. Far-
fuglarnir tveir á Ítalíu eru sagðir hafa
komið frá Rússlandi. Vitað er að H5N1-
afbrigðið hefur orðið alls um 90 manns að
bana, aðallega í Austur-Asíu. Ljóst er að
þeir sem hafa látist hafa allir neytt kjöts
af sjúkum fuglum eða komist í nána
snertingu við afurðir sýktra fugla. Af-
brigðið smitast ekki milli manna. En Dav-
id Nabarro, sem stjórnar viðbúnaði Al-
þjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar,
WHO, vegna fuglaflensunnar sagði í gær
að ekki þyrfti nú nema tvær stökkbreyt-
ingar í veirunni til að hún gæti smitast
milli manna.
Fuglaflensa
á Ítalíu
FRÁ fornu fari hafa menn trúað því að vold-
ugar landvættir búi í landinu. Í Heimskringlu
Snorra Sturlusonar er sagt frá fjórum þeirra,
dreka, gammi, griðungi og bergrisa, sem
standa vörð um hvern landshluta fyrir sig. Er
bergrisinn t.d. sagður bera höfuðið hærra en
fjöllin öll. Engum sögum fer af því hvernig
þessar yfirnáttúrulegu furðuverur komust
hingað en svo virðist sem þær hafi verið til stað-
ar í landinu áður en landnámsmenn settust hér
að.
Bergrisinn virðist nú halda til í Þjórsárósum
ef marka má þá sýn sem blasti við ljósmyndara
Morgunblaðsins á flugi yfir ósana. Máttur hans
virðist enn mikill. Þótt hann hafi ekki járnstaf í
hendi og jötna sér til hjálpar við að fæla óvel-
komna frá, líkt og greint er frá í Heimskringlu,
er hann býsna óárennilegur á að líta.
Morgunblaðið/RAX
Bergrisinn ber enn höfuðið hátt
HUNDRUÐ þúsunda manna komu saman á
útifundum í borgum Írans í gær til að minn-
ast þess að 27 ár voru liðin frá íslömsku bylt-
ingunni. Forseti Írans, Mahmoud Ahmad-
inejad, sagði í ræðu á
torgi í höfuðborginni
Teheran að Íranar
myndu bregðast harka-
lega við ef samþykktar
yrðu refsiaðgerðir gegn
þeim í öryggisráði Sam-
einuðu þjóðanna. Fram
til þessa hefðu Íranar
fylgt friðsamlegri stefnu
í kjarnorkumálum og
unnið með alþjóðlegum
stofnunum í samræmi við samninginn gegn
útbreiðslu kjarnorkuvopna, NPT.
„Ef við sjáum að þið viljið brjóta rétt
írönsku þjóðarinnar með því að nota ákvæð-
in [í NPT-samningnum] skuluð þið vita að
íranska þjóðin mun endurskoða stefnu sína.
Þið ættuð ekki að gera neitt sem leiða mun
til slíkrar endurskoðunar,“ sagði Ahmad-
inejad. Talið er að forsetinn hafi með hót-
unum sínum átt við að Íranar myndu segja
sig frá NTP-samningnum og yfirgefa Al-
þjóðakjarnorkumálastofnunina, IAEA.
Liðsmenn IAEA hafa safnað saman
gögnum sem þeir telja benda til þess að Ír-
anar stefni að smíði kjarnorkuvopna. Sjálfir
segja Íranar að markmiðið með tilraunun-
um sé aðeins að framleiða raforku.
Fordæmdi Múhameðs-teikningar
Ahmadinejad notaði einnig tækifærið til
að fordæma birtingu á skopteikningum af
Múhameð spámanni í vestrænum fjölmiðl-
um. Sagði hann fjölmiðlana vera „gísla“ Ísr-
aela og ítrekaði um leið þá skoðun sína að
frásagnir af helförinni, fjöldamorðum nas-
ista á gyðingum, væru uppspuni. Hin raun-
verulega helför væri núna og fórnarlömbin
Palestínumenn og Írakar.
Vara við að
„brjóta rétt
á Írönum“
Eftir Kristján Jónsson
kjon@mbl.is
Mahmoud
Ahmadinejad
♦♦♦