Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 4
VEÐUR á borð við það sem
gerði á Flateyri sl. föstudag
kallast Grundarendaveður. Að
sögn Einars Sveinbjörnssonar,
veðurfræðings, geta skilyrði
slíks aftakaveðurs skapast þeg-
ar krappar suðvestanlægðir
fara norður með vesturlandinu.
„Þetta veður náði hámarki
beint úti af Vestfjörðum og lá
þá suðvestanáttin þvert á firð-
ina. Um er að ræða mjög hvass-
an vind sem fer þvert á fjöllin,
m.a. handan Flateyrar, en fjöllin
hafa þau áhrif að brjóta vindinn
upp og magna hann á tilteknum
stöðum, sem veldur því að vind-
urinn verður byljóttur bæði hlé-
megin fjalla sem og handan
fjarðarins,“ segir Einar og
bendir á að vindhviður á borð
við þessar þekkist vel víða á
Vestfjörðun, t.d. í Arnarfirði,
Dýrafirði og Önundarfirði, þar
sem Flateyri stendur.
Spurður um aflið í mestu
vindhviðunum segir Einar ekki
ólíklegt að það hafi verið tals-
vert meira en mælir Veðurstof-
unnar hafi náð að greina, því af-
ar ólíklegt sé að versta hviðan
lendi akkúrat á mælinum sjálf-
um. Nefnir hann til saman-
burðar að fyrir tveimur árum
hafi orðið talsvert tjón í Freys-
nesi austur í Öræfasveit í öfl-
ugri austanátt, þar sem ójafn
vindur hafi komið í hviðum af
Öræfajökli. „Þá mældust í
Skaftafelli, sem er í talsverðri
fjarlægð, yfir 50 m/s í hvið-
unum,“ segir Einar.
Fjöllin brjóta upp
og magna vindinn
4 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Verndari Vildarbarna er Vigdís Finnbogadóttir.
Landsbanki Íslands sér um fjárhald sjóðsins.
irUmsókn um ferðastyrki
Styrkir verða í þetta skipti veittir til barna á aldrinum 6-16 ára.
Umsóknarfrestur er til 1. mars 2006.
Úthlutað verður úr sjóðnum 20. apríl 2006.
Alva Lena og systir hennar í Florida.
Nánari upplýsingar og umsóknareyðublöð er að finna á www.vildarborn.is
LJÓST er að skemmdirnar á Flat-
eyri í kjölfar aftakaveðursins sem
þar gerði sl. föstudagskvöld eru mun
meiri en menn gerðu sér grein fyrir í
næturhúminu. Í morgunsárið í gær-
morgun voru meðlimir björgunar-
sveitarinnar Sæbjargar á Flateyri
mættir á svæðið, auk fulltrúa trygg-
ingafélaganna sem flogið höfðu vest-
ur fyrr um morguninn til að meta
skemmdirnar í dagsbirtu. Einnig var
umboðsmaður Viðlagatryggingar á
Ísafirði mættur til Flateyrar til að
meta aðstæður, en ýmsir velta eðli-
lega fyrir sér hvort veðurofsinn hafi
verið það mikill að hann teljist til
náttúruhamfara og að til kasta Við-
lagatryggingar komi.
„Það er ótrúlegt að sjá þetta svæði
í dagsbirtu og menn gera sér mun
betri grein fyrir skemmdunum, sem
sáust hreinlega ekki í svartamyrkr-
inu í gærkvöldi [föstudagskvöld],“
segir Halldór Sveinbjörnsson,
fréttaritari Morgunblaðsins, og tek-
ur fram að hreint magnað sé að sjá
hvaða leið þakið af trésmíðaverk-
stæðinu við Túngötu fór í veður-
hamnum.
Planki fór einn og hálfan
metra inn í húsið
„Þakið fer á milli húsa, rétt snertir
eitt hús og lendir ofan á þaki á húsi
sem er í um 150 metra fjarlægð frá
verkstæðinu. Síðan dettur það fram
af því húsi og ofan á nýjan Explorer-
jeppa. Heldur síðan áfram og tekur
stór tré auk þess að fella girðingar
og einn ljósastaur. Einn stór biti eða
planki af þakinu endar loks á bóla-
kafi inni í húsi þar sem hann fer
a.m.k. 1,5 metra inn í gegnum vegg-
inn og endar á klósettinu í húsinu
þar sem plankinn tekur í sundur all-
ar vatnsleiðslur þannig að þar er allt
á floti og bramlað og brotið. Það er í
raun bara stórfurðulegt að enginn
skuli hafa orðið fyrir þessu,“ segir
Halldór og tekur fram að tekin hafi
verið saman um 60–70 fiskikör sem
farið hefðu á ferð um bæinn án þess
að valda neinum tilfinnanlegum
skemmdum. Líkt og fram kom í
blaðinu í gær telja menn tjónið á
Flateyri hlaupa á tugum milljóna
króna.
„Staðan er slæm. Þetta lítur illa út
og við erum að tala um miklar
skemmdir,“ sagði Ívar Kristjánsson,
formaður björgunarsveitarinnar
Sæbjargar á Flateyri, þegar blaða-
maður náði tali af honum um hádeg-
isbilið í gær. Sagði hann brak á víð
og dreif um eyrina á mun stærra
svæði en talið var í fyrstu. Aðspurð-
ur sagði Ívar hátt á annan tug björg-
unarsveitarmanna að störfum í gær
við hreinsunarstarf í bænum og var
von á fleirum. „Hreinsunarstarfið er
komið í fullan gang og reiknum við
með að það klárist í kvöld, en þá
verðum við búnir að fjarlægja allt
lauslegt,“ segir Ívar.
Samkvæmt upplýsingum frá Veð-
urstofu Íslands mældust mestu hvið-
urnar á Flateyri sl. föstudagskvöld
43,9 m/s, en veðurfræðingar sem
blaðamaður ræddi við útiloka ekki að
mestu hviðurnar hafi getað verið allt
að 50–60 m/s, jafnvel þótt mælirinn
hafi ekki numið það, enda vindurinn
byljóttur. Segja þeir vindstrengi
geta legið á ákveðnum takmörkuð-
um svæðum sem skili sér því ekki inn
á mæli Veðurstofunnar. Eftir því
sem björgunarsveitarmenn á Flat-
eyri segja, sem vanir eru að vera úti í
veðri sem mælist 40 m/s, var veð-
urofsinn miklum mun meiri í verstu
hviðunum og héldu sumir því fram
að þær hlytu að hafa verið um 60
m/s. Þrátt fyrir þessar miklu hviður
var meðalvindur á svæðinu ekki
nema 18–20 m/s samkvæmt mæling-
um Veðurstofunnar. Töldu veður-
fræðingar sem blaðamaður ræddi
við að fjallabylgjur hefðu náð að
steypa sér niður, magnast upp og
valdið fyrrgreindum usla, en mikil
ókyrrð var í loftinu yfir landinu sl.
föstudag.
Ótrúlegt að sjá svæðið í dagsbirtu
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjörnsson
Vindkrafturinn var svo mikill að þakbiti þaut léttilega í gegnum vegg á
íbúðarhúsi. Bitinn lenti inni á baði og reif þar í sundur allar leiðslur.
Brak úr trésmíðaverkstæðinu dreifðist víða um eyrina á Flateyri og olli
talsverðum skemmdum bæði á bílum og húsum, auk þess að fella einn ljósa-
staur. Biti úr þakinu lenti á bólakafi inni í íbúðarhúsi þar sem hann möl-
braut klósettið og reif í sundur allar vatnslagnir. Auk þess fóru 60–70 fiski-
kör á flug um bæinn í aftakaveðrinu, án þess þó að valda skemmdum.
Þakið á verkstæðishúsinu flaug hundruð metra í aftakaveðrinu sem gekk yfir á Flateyri í fyrrakvöld
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is