Morgunblaðið - 12.02.2006, Side 12
VinnslaHrámálmar
Alcoa starfrækir 28 álver í fimm heimsálfum og framleiðslugetan er um fjórar milljónir
tonna á ári. Álið er ýmist steypt, þrýstimótað eða valsað í endanlegar afurðir. Úr einu
tonni af áli má framleiða 60.000 stórar drykkjardósir, burðargrindur í sjö fólksbíla eða
40.000 geisladiska. Hægt er að breyta eiginleikum áls með því að blanda það öðrum
málmum. Alcoa hefur þróað margar af algengustu álblöndunum.
UpphafiðBáxít og súrál
Álframleiðsla hefst með
námi á báxíti, rauðum,
leirkenndum jarðvegi sem
finnst í miklum mæli víða um heim.
Fjögur tonn af báxíti gefa um tvö
tonn af súráli sem aftur nægja
til að framleiða eitt tonn af
áli. Alcoa er stærsti fram-
leiðandi báxíts, súráls og
áls í heiminum.
SamgöngurEfni og hlutir í farartæki
Alcoa hefur verið leiðandi í álfram-
leiðslu fyrir flugiðnað og bílaiðnað í
meira en 100 ár. Álnotkun í bílaiðnaði
eykst stöðugt og með léttari farar-
tækjum sparast eldsneyti, útblástur
minnkar og öryggi eykst. Alcoa hannar
og framleiðir felgur, burðargrindur,
krumpusvæði, klæðningar, vélarhluti,
festingar, fjöðrunarkerfi, drifbúnað og
rafkerfi í stór og lítil farartæki.
Mannvirki
Hátækni
Hús og byggingarefni
Álnotkun í byggingariðnaði hefur vaxið
ört um allan heim. Ál er til dæmis notað
í burðarvirki, glugga, hurðir, stiga,
klæðningar, þakrennur og festingar.
Alcoa hefur átt hlut í að reisa margar af
athyglisverðustu byggingum nútímans
og þar er Empire State byggingin í New
York elsta dæmið.
Iðnaðarvörur
Notagildi áls er ótrúlega fjöl-
þætt og ál er að finna í iðnaðar-
vörum af ýmsu tagi. Alcoa fram-
leiðir meðal annars efni og hluti
í háspennustrengi, umferðar-
skilti, hálfleiðara, rafeinda-
búnað, vindmyllur, túrbínur,
rafala, varmaskipta, vökvakerfi,
prentplötur og stoðtæki.
Alcoa er stærsta álfyrirtæki heims með um
130.000 starfsmenn á meira en 400 stöðum í
43 löndum. Starfsemi Alcoa spannar alla
virðiskeðjuna í áliðnaði, frá námuvinnslu til
fullvinnslu. Afurðir má flokka í báxít og súrál,
hrámálma, efni og hluti í farartæki, hús og
byggingarefni, iðnaðarvörur og umbúðir og
neytendavörur. Árið 2005 voru heildartekjur
samstæðunnar 26,2 milljarðar dollara
eða um 1.600 milljarðar króna.
Matt Garratt,
verkfræðingur hjá Alcoa,
við fjöðrunarbúnað í
Mercedes-Benz M-class jeppa
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
A
LC
3
13
14
02
/2
00
6