Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 29
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 29
FRÉTTIR
Mod. 12:12 +
DUX Dynamic DUX 12:12+DUX 1001 DUX 7007
Sænsku Rúmin
Eftirsótt lífsgæði
Ármúla 10 • Sími: 5689950
w
w
w
.is
ak
w
in
th
er
.c
om
Neskaupstaður | Jón Sveinbjörnsson,
trillusjómaður á Norðfirði, tekur
stundum að sér að skjóta fólki í
næstu firði ef liggur á og vegir eru
ófærir. Sérstaklega þegar fiskirí
liggur niðri og óhægt um vik með
netalagnir vegna veðurgarra. Hann
verður þungur á brún þegar rætt er
um kvótamálin og hreint og beint
dapur á svip þegar fækkun í smá-
bátaútgerðinni ber á góma. Annars
er hann spakur, kann á sinn sjó og
segist ekki geta hætt, því bátarnir
séu nánast verðlausir og eitthvað
þurfi menn að hafa fyrir stafni.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Kann á
sinn sjó
BÆJARRÁÐ Dalvíkurbyggðar hef-
ur samþykkt að nýta sér þær heim-
ildir sem samþykktar voru af launa-
nefnd sveitarfélaga hinn 28. janúar
sl. til tímabundinna viðbótar-
greiðslna umfram gildandi kjara-
samninga við stéttarfélögin Einingu-
Iðju, Kjöl og Félag leikskólakenn-
ara. Heimildin gildir frá 1. janúar
2006 til loka samningstíma kjara-
samnings hvers félags. Áður hefur
Akureyrarbær ákveðið að nýta sér
þessar heimildir.
Launanefnd sveitarfélaga sam-
þykkti hinn 28. janúar sl. að heimila
sveitarfélögunum að hækka laun
leikskólakennara. Um er að ræða
heimild til hækkunar á launum til
leikskólakennara, deildarstjóra í
leikskólum og tengdra starfa. Ekki
er þó um að ræða breytingu á kjara-
samningum.
Launaflokkahækkanir
og eingreiðslur
Hækkanir samkvæmt heimildinni
eru í formi launaflokkahækkana og
eingreiðslna og gilda til 30. septem-
ber 2006 og jafngilda um 24–32 þús-
und kr. á mánuði miðað við fullt
starf.
Jafnframt samþykkti nefndin að
heimila sveitarfélögum að hækka
með sams konar hætti lægstu laun
starfsmanna í ASÍ og BSRB félögum
sem launanefndin hefur samið við
þegar á þessu ári um allt að 15 þús-
und krónur á mánuði. Hærra laun-
aðir starfsmenn fá 1,5% launabætur
umfram gildandi kjarasamninga skv.
þessum heimildum árin 2007 og
2008.
Dalvík nýtir sér heimild
til viðbótargreiðslna
HERDÍS Sveinsdóttir, kennari við
hjúkrunarfræðideild Háskóla Ís-
lands, forstöðumaður fræðasviðs
skurðhjúkrunar á
Landspítala – há-
skólasjúkrahúsi
og fyrrum for-
maður Félags ís-
lenskra hjúkrun-
arfræðinga, fékk
nýverið framgang
í stöðu prófess-
ors. Herdís er
fjórði prófessor-
inn í hjúkrun á Íslandi.
Herdís lauk BS-prófi í hjúkrunar-
fræði frá Háskóla Íslands árið 1981,
meistaraprófi frá Michigan-háskóla,
Ann Arbor 1987 og doktorsprófi frá
háskólanum í Umeå í Svíþjóð árið
2000. Herdís hefur kennt hjúkrunar-
fræðingum sem sótt hafa nám til Há-
skóla Íslands allt frá því hún lauk
námi, að frátöldum þrem árum sem
hún dvaldi við nám og störf í Banda-
ríkjunum.
Rannsóknir Herdísar eru fjöl-
þættar og hefur hún birt niðurstöður
þeirra víða og haldið um þær fjölda
erinda. Hún hefur mikið rannsakað
heilbrigði kvenna og þá sérstaklega
tíðahring kvenna. Áhugasömum um
rannsóknastörf og önnur störf Her-
dísar er bent á að skoða heimasíðu
hennar http://www.hi.is/~herdis/
Nýr
prófessor
í hjúkrun
JÓN B. Jónasson, lögfræðing-
ur og skrifstofustjóri í sjávarút-
vegsráðuneytinu, verður skip-
aður ráðuneytisstjóri sjávar-
útvegsráðuneytisins og tekur
við starfinu þegar Vilhjálmur
Egilsson lætur af því 15. mars.
nk. Jón hefur verið skrifstofu-
stjóri í ráðuneytinu í 25 ár og
staðgengill ráðuneytisstjóra.
Jón hóf störf í ráðuneytinu
1974.
Nýr ráðu-
neytis-
stjóri