Morgunblaðið - 12.02.2006, Qupperneq 30
30 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Allt um
íþróttir
helgarinnar
Íþróttir á morgun
Hvað ef“ er yfirskrifthönnunarverkefnissem sænska risafyrir-tækið Ikea hleypti afstokkunum. Ikea fékk
28 hönnuði í lið með sér og úr varð
spennandi og áhugavert verkefni
sem hefur nafnið ikea ps. Verkefnið
ber sem fyrr segir yfirskriftina
„hvað ef“ og gefur það kjörorð hönn-
uðunum ákveðið frelsi til að hugsa á
frumlegan hátt og velta fyrir sér nýj-
um möguleikum. Á heimasíðu verk-
efnisins er kastað fram hugmynd-
inni: „Hvað ef brjáluðustu
hugmyndirnar fælu í sér skynsam-
legustu lausnirnar?“ Hönnuðirnir
fengu að kanna og gera tilraunir.
Prófa ný efni, aðferðir og nýjar
vinnuaðferðir en fyrst og fremst áttu
þeir að hafa gaman, sem er alltaf gott
veganesti þegar byrjað er á nýju
verkefni. Afraksturinn lét ekki á sér
standa og hlutirnir sem bættust við
vöruúrval Ikea eru sannarlega tíma-
bær viðbót.
Fyrir þá sem þora að skera sig úr
Hlutirnir eru ætlaðir fyrir heimili
sem þora að skera sig úr eins og seg-
ir á heimasíðu Ikea en reyndar tel ég
að hlutirnir geti fundið sér stað og
hlutverk á flestum heimilum.
Glimsta er gólfmotta sem er rauð-
ur dregill fyrir heimilið og að sögn
Maríu Vinka, sem á heiðurinn af
mottunni, er rauður dregill þarfa-
þing á hverju heimili. Hvern langar
ekki til að líða eins og Hollywood-
stjörnu, allavega stundum? Mottan
er einföld, rauð að lit með litlum
skreytingum sem eiga sér rætur í
sænskum hefðum. Maria Vinka á
einnig heiðurinn af fleiri hlutum í
ps-línunni; efni með demanta-
munstri sem hægt er að nota í gard-
ínur eða skilrúm.
Demantamunstraðar gardínur
gefa heimilinu sannarlega ríkmann-
legt yfirbragð.
María hannaði aðra mottu sem er
með landakortsmynstri. Kortið er af
hverfinu Almhult í sænsku smálönd-
unum en götuheitum hefur verið
skipt út fyrir götuheiti víðs vegar að
úr heiminum sem ljær mottunni al-
þjóðlegan blæ.
Chris Martin, hönnuðurinn en
ekki söngvarinn, hannaði stólinn Ell-
an sem er borðstofustóll en líka
ruggustóll. Stóllinn gefur fólki kost á
að halla sér aftur eftir matinn og
slappa af, njóta matarins og kannski
vínsopa.
Ellanstóllinn er búinn til úr endur-
unnu plasti og viðartrefjum. Stóllinn
er steyptur í heilu lagi og ekki sam-
settur með skrúfum eða festingum
þannig að hann smellur í sitt lag.
Sannarlega frelsun fyrir alla þá sem
hafa barist við að setja saman Ikea-
húsgögn.
Tillit til félagslegra þátta
og umhverfis
Í ps-línunni voru félagslegir og
umhverfisþættir hafðir í huga. Sem
dæmi um það er samstarf hönnuð-
anna Önnu Eferlund og Mariu Vinka
við konur búsettar á Indlandi.
Eferlund og Vinka kynntust konun-
um og fallegu handverki þeirra á
ferðalagi um sveitir Indlands. Unicef
aðstoðaði við að gera verkefnið að
veruleika og nú sauma konurnar út
Grindtorppúða með sínu fallega
handverki og myndefnið er úr dag-
legu lífi kvennanna; sinnepsakrar,
hanar og heit sól.
Jarbo er lítill sófi búinn til úr ban-
anaþráðum en Henrik Preutz gerði
tilraunir með ýmis efni áður en hann
ákvað að nota bananaþræði. Sófinn
er í laginu eins og kökusneið og hefur
því þann eiginleika að nýta horn í
herbergjum. Einnig er hægt að raða
nokkrum saman og fjórir mynda
heilan hring og því hægt að raða
þeim t.d. í kringum súlu.
Fimm hæða bakkarnir Hylte eru
partíhvetjandi að sögn Sunnivu
Kandell. Hægt er að raða bökkunum
saman að vild og bera fram allt sem
hugurinn girnist.
Hella Jongerius er þekktasti
hönnuðurinn sem á hluti í ps-verk-
efninu. Hún gerði fjórar gerðir af
vösum sem kallast Jonesberg. Hella
Jongerius hefur starfað sem hönn-
uður í yfir áratug og átt farsælan fer-
il. Hella rekur studíó í Rotterdam og
kallar það Jongeriuslab og eins og
nafnið gefur til kynna er það eins-
konar rannsóknarstofa fyrir fram-
sæknar og sniðugar hugmyndir
hennar.
Hún vann áður með Droog-hönn-
unarhópnum en starfar nú sjálfstætt
þar sem hún vildi róa á mið fagur-
fræðinnar og frá þeirri miklu hug-
myndafræði sem Droog vinnur eftir.
Hlutir hennar finnast á söfnum og
sýningum víða um heim og seljast
venjulega fyrir væna fúlgu. En nú,
fyrir tilstilli Ikea, eru Hellu-vasar á
færi flestra.
Persónulegt yfirbragð
Hella Jongerius lýsir verkefni sínu
á þann hátt að það sé í raun draumur
hvers hönnuðar að framleiða í stóru
upplagi, þar sem hönnuðir eru ekki
listamenn. Þrátt fyrir að vera mennt-
uð með fjöldaframleiðslu fyrir aug-
um er þetta fyrsta hönnun hennar
sem framleidd er í svo miklu magni.
Hún segir tilfinninguna svipaða og
hjá arkitekt sem sér sína fyrstu
stóru blokk rísa. „Fyrir mér var
stóra spurningin alltaf sú hvort mín
Draumur hvers hön
Í hlutarins eðli | Oft mætti ætla að hönnun og fjöldafram-
leiðsla fari ekki saman, þótt draumur hvers hönnuðar sé að
ná til sem flestra. Því geti aðeins fáir leyft sér að kaupa inn-
anstokksmuni, sem hannaðir hafi verið af alúð og natni.
Það er þó sem betur fer ekki algilt eins og dæmin sanna.
Lóa Auðunsdóttir fjallar um Ikea-verkefnið „Hvað ef?“.
Gott að slappa af eftir matinn og
halla sér aftur. Ellan-stóll eftir
Chris Martin.
Hylte-bakkar til að halda partí.