Morgunblaðið - 12.02.2006, Síða 46
46 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
Panama er syðst í Mið-Am-eríku, minna en Ísland ogeins og S í laginu. Að vest-anverðu liggur landið aðKosta Ríka en að austan
að Kólumbíu og er það 50 km þar
sem það er mjóst. Náttúra landsins
er auðug og fjölbreytt, þar eru hátt í
1000 fuglategundir og er landið elsk-
að af náttúruunnendum. Um 44%
landsins eru vaxin skógi, en fyrir 50
árum voru það 70%.
Saga Panama nær 11.000 ár aftur í
tímann svo vitað sé og í hlíðum eld-
fjallsins Barú hafa fundist steinstytt-
ur sem bera vott um forna menn-
ingu.
Spánverjar stigu á land í Panama
árið 1501. Þeir komu að Karíbahafs-
ströndinni og er Nombre de Dios
einn af fyrstu stöðunum þar sem þeir
námu land. Nokkrir tugir ættflokka
bjuggu í Panama á þeim tíma, en
þeim fækkaði mjög hratt eftir komu
Spánverja. Það voru ekki einungis
sverð sem stráfelldu þá heldur fluttu
Spánverjar með sér sjúkdóma svo nú
eru aðeins eftir 7 ættbálkar indíána í
landinu.
Casco Viejo
Spánverjar stofnuðu Panama-
borg árið 1519. Árið 1671 gerði ensk-
ur sjóræningi, Henry Morgan að
nafni, árás á borgina með 1200
manna liði og lagði hana í rúst. Ný
borg var reist á stað þar sem talið
var betra að verjast árásum ræn-
ingja. Hún er nú elsti hluti Panama-
borgar og nefnist Casco Viejo. Þar
eru margar fallegar byggingar. Höll-
in þar sem Manuel Noriega hélt
veislur sínar er þó rústir einar eftir
átökin þegar honum var steypt af
stóli árið 1989. Hann komst til valda
árið 1981 eftir dauða Omar Torrijos
Herrera. Noriega var sakaður um
morð og spillingu og að eiga þátt í
eiturlyfjasmygli og peningaþvætti.
Hann var dæmdur í 40 ára fangelsi
og afplánar nú dóminn í Bandaríkj-
unum.
Mercado del Marisco er fiskmat-
sölustaður á 2. hæð á stórum fisk-
markaði í gamla bænum. Mjög vin-
sæll og hvert borð setið. Þrátt fyrir
hita úti fannst ekki fisklykt inni, allt
var hreint og þvegið. Fisktegundirn-
ar voru óteljandi og hægt að benda á
fisk og fá hann matreiddan fyrir sig.
Slíkan stað væri gaman að sjá á Ís-
landi.
Í Panamaborg eru ýmis söfn. Til
dæmis safn, sem sýnir heimili betri
borgara um það leyti sem skurður-
inn var grafinn. Tveggja hæða hús
og langar yfirbyggðar svalir á efri
hæð, kirkju og ýmsar aðrar bygg-
ingar var þarna að sjá.
Búningasafn og kjólasafn eru á
sama svæði. Þrátt fyrir mölkúlur
sáust göt í fíngerðum flíkum. Hluti af
svæðinu er tileinkaður frumbyggj-
um og fór enskumælandi leiðsögu-
maður með okkur milli stráhúsa. Á
markaði mátti sjá innfædda vinna og
þar seldu þeir varning sinn. Því mið-
ur fyrir okkur voru upplýsingar á
söfnum aðeins á spænsku.
Spænska virkið í Portobelo
Vegirnir í Panama minna á þá ís-
lensku fyrir áratugum, sumstaðar er
einbreitt malbik og malarvegir.
Skrautlega málaðir strætisvagnar
skreyttir dúskum eru í ferðum milli
þorpa. Kýr, hundar og hænsni láta
fara vel um sig á malbikinu.
Í Portobelo standar rústir virkis
sem Spánverjar reistu til varnar sjó-
ræningjum. Víkin, sem er góð höfn
frá náttúrunnar hendi, stendur vel
undir þessu fallega nafni sem Kól-
umbus gaf henni árið 1502.
Kafað hjá Caribbean Jimmy
Skammt frá Nombre de Dios er
Caribbean Jimmy’s Dive Resort.
Jimmy, sem er bandarískur, er með
aðstöðu fyrir kafara og býður upp á
búnað bæði fyrir „snorkl“ og köfun.
Á ströndinni standa lítil hús byggð
úr bambusviði og leir sem hægt er að
fá leigð. Vefslóðin að heimasíðu
þessa yndislega staðar er caribbean-
jimmysdiveresort.com.
Kafað var niður að flaki flutninga-
skips sem liggur á um 90 feta dýpi
nokkrar mílur frá landi. Skipið, fullt
af varningi, var á leið frá Kína til
Kólumbíu í mars á síðasta ári en
fórst í fellibyl. Kuna-indíánar voru á
litlum báti við flakið og köfuðu niður
án búnaðar nema með blöðkur á fót-
um. Þeir geta verið allt að 4 mínútum
í kafi.
Einangrað samfélag Kuna-indíána
Einn daginn fór hópurinn í ferð til
San Blas-eyja þar sem frumbyggjar
búa í einangruðu samfélagi. Í flæð-
armálinu tók höfðingi Kuna-ætt-
bálksins á móti Jimmy sem færði
honum fullt fang af regnhlífum og
leirtau úr sokkna skipinu. Talaðist
þannig til að hópurinn, tíu manns,
keypti hádegismat í þorpinu. Ný-
veiddur, grillaður smáfiskur og hrís-
grjón soðin í kókosmjólk voru borin
fram af þorpsbúum sem gengu ber-
fættir í öskunni. Börnin földu sig
feimin en konurnar, með perlum
vafða leggi og hring í miðsnesi,
sýndu handavinnu sína, „Mola“, sem
þýðir blússa á máli innfæddra. Fer-
kantaðir efnisbútar eru lagðir hver
ofan á annan. Skorið er mynstur í
gegnum lögin og myndir af blómum
og dýrum saumaðar í allavega litum.
Hver þjóðflokkur á sitt mynstur og
fara samsetning mynsturs og litir
eftir aldri og stöðu kvenna.
Skip spænska flotans á hafsbotni
Á 16. til 18. öld voru skip spænska
flotans í ferðum milli Spánar og Pan-
ama. Þau færðu varning til nýlend-
unnar og héldu heim hlaðin gulli og
silfri sem flutt var gegnum regn-
skóga Panama frá Kólumbíu og
Perú. Mörg þessara skipa sukku í
Karíbahafið eftir árásir sjóræningja
eða brotnuðu í fellibyljum. Þau liggja
enn á hafsbotni á þessum slóðum og
væri gaman að kafa niður að einu
slíku.
Saga Panamaskurðarins
Árið 1878 gerði stjórn Kólumbíu,
sem Panama var þá í ríkjasambandi
við, samning við Frakka um gerð
Panamaskurðarins. Var hafist handa
árið 1881 en verkið varð erfiðara en
nokkurn óraði fyrir. Gula og malaría
drápu 22.000 verkamenn. Félagið
varð gjaldrota 1889. Bandaríkja-
menn keyptu réttinn til að halda
verkinu áfram árið 1903 að undan-
genginni uppreisn Panama gegn
Kólumbíu. Stjórn Bandaríkjanna
studdi Panama í uppreisninni og
fékk að launum skurðinn. 80 km
langur skurðurinn var tekinn í notk-
un árið 1914 og sáu Bandaríkjamenn
um reksturinn til ársins 1999 er
Panamabúar tóku sjálfir við rekstri
skurðarins.
Besta útsýni yfir skurðinn er frá
Miraflores Visitors Center
(www.pancanal.com). Nýleg, fjög-
urra hæða byggingin hýsir safn,
verslun og matsölustað. Hólfin í
skurðinum tæmast og fyllast og
dráttartæki, sem renna eftir braut-
um á hvorum skurðbakka, draga
stór skip í gegn. Hárnákvæmt, því
engu má muna, aðeins 1 feti hvorum
megin. Stærð margra skemmtiferða-
skipa miðast við að þau komist gegn-
um Panamaskurðinn.
Ekið eftir Interamericana
Ameríkubrúin liggur yfir skurð-
inn. Hún var byggð af Ameríku-
mönnum í tengslum við gerð Inter-
americana, þjóðvegar 1 sem liggur
frá Norður-Ameríku og er áætlað að
leggja alla leið til Suður-Ameríku.
Ennþá nær hann aðeins til Panama
og er eftir að leggja hann í gegnum
suðurhluta Panama og Kólumbíu til
að Suður- og Norður-Ameríka verði
tengdar með vegasambandi.
Hátíð í Chitré
Í borginni Chitré er árlega haldin
hátíð í febrúar eða mars. Fólkið
skemmtir sér í skrúðgöngu og dans-
ar þjóðdansa þar sem grímur eru
áberandi, þær eru notaðar til að reka
hið illa burtu. Þátttaka er slík að erf-
itt er að fá hótelherbergi á þeim
tíma. Ferðamenn kaupa grímur, ker-
amik og diska með þjóðlögum.
Meðal bjórtegunda sem fram-
Land fjölbreytni og hefða
Panamaskurðurinn kemur
líklega upp í huga flestra
þegar minnst er á Panama.
Landið hefur þó fjölbreytta
náttúru og sögu sem rekja
má árþúsundir aftur í tím-
ann. Gunnhildur Hrólfs-
dóttir sótti Panama heim.
Nýbygging í Boquete. Bandaríkjamenn reisa voldugar byggingar í Panama.
Indíánakona af Kuna-ættbálki í sölubás sínum. Á veggnum er Mola-útsaumur. Höllin, sem Noriega hélt veislur sínar í, er nú í niðurníðslu.
Skrautlegir minjagripir til sölu.