Morgunblaðið - 12.02.2006, Page 48
48 SUNNUDAGUR 12. FEBRÚAR 2006 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
Þau eru drungaleg hljóðinsem mæta blaðamanniþegar hann gengur inn ástóra sviðið í Borgarleik-
húsinu gegnum dökka kletta og
berg – þrumur og úrhellisregnhljóð,
hrafnagarg og öskur. „Fæðing
Ronju, gjöriði svo vel,“ segir leik-
stjórinn Sigrún Edda Björnsdóttir
við mig og Kristin Ingvarsson ljós-
myndara. Við horfum spurn-
araugum á hana. Eftir stutta stund
þagnar allt og ungbarn heyrist
gráta. Ronja ræningjadóttir er
fædd, á stóra sviði Borgarleikhúss-
ins.
Hjartfólgin saga
Kannski var ekki við öðru að bú-
ast en hljóðin væru æsileg þegar í
hlut á ein besta spennubók sem
skrifuð hefur verið fyrir börn, leyfi
ég mér að fullyrða. Ronja ræn-
ingjadóttir eftir sænsku skáldkon-
una Astrid Lindgren hefur verið ein
af eftirlætisbókum íslenskra barna
um árabil, enda hefur hún til að
bera allt sem prýðir góða sögu; ást,
spennu og dramatík, og allt er þetta
fléttað inn í vel sagða frásögn með
rætur í norrænu umhverfi. Útkom-
an er frábær, eins og allir vita sem
lesið hafa.
Í sama streng tekur Sigrún
Edda, sem segist afar hrifin af Ast-
rid Lindgren og verkum hennar,
ekki síst Ronju ræningjadóttur sem
hún segir sér afar hjartfólgna. „Ég
las þessa bók þegar hún kom út fyr-
ir dóttur mína – kynntist Ronju
þannig fyrst, og hreifst af henni,
eins og svo margir. Það var mjög
gaman að lesa hana fyrir barnið sitt,
því börn upplifa ævintýrið á annan
hátt en fullorðnir, en bókin á samt
svo sterkt erindi til allra kynslóða,“
segir hún og rifjar upp þessu til
staðfestingar eigin táraúthellingar
yfir bókinni sem barnið undraðist.
„Það er galdurinn hjá Astrid, eins
og í Ronju ræningjadóttur – hún er
að segja mjög stóra sögu sem höfð-
ar til allra, en skrifar hana á barn-
vænlegan hátt. Í raun má segja að
þetta sé Rómeó og Júlía fyrir börn,
þessar ættir sem berjast, nema að
þessi saga fer vel.“
Um leið er þetta þroskasaga
stúlku, Ronju, sem kemst að því að
faðir hennar er ekki fullkominn
þrátt fyrir að vera voldugasti ræn-
ingjaforinginn í fjöllum og skógum.
En þar sem hún hefur alist upp við
gott atlæti, og skilur vel muninn á
réttu og röngu, er hún tilbúin til að
breyta ríkjandi ástandi. Að mati
Sigrúnar Eddu er þessi boðskapur
einn mesti styrkleiki Astridar Lind-
gren sem höfundar. „Hún sagði
sjálf: Það er smíðagalli á mannkyn-
inu – við leysum allt með ofbeldi.
Vonin liggur í börnunum okkar. Ef
við ölum börnin okkar upp í kær-
leika og virðingu fyrir öðru fólki
mun það skila sér í mannlegum
samskiptum. Ef við viljum breyta
heiminum gerum við það gegnum
börnin okkar. Það er stóra sam-
hengið í sögunni um Ronju ræn-
ingjadóttur,“ segir hún.
Ævintýraheimur skapaður
Það getur ekki verið neitt
áhlaupaverk að koma svo stórbrot-
inni sögu á leiksvið svo vel sé, en
Sigrún Edda segir hópinn sem að
sýningunni stendur leggja sig allan
fram. „Astrid á nú ekki annað skilið
af okkur,“ segir hún. „Við höfum í
höndunum fjölskyldusöngleik, sem
var búinn til í kringum 1990, með
lögum eftir danskan tónsmið sem
heitir Sebastian, sem Karl O. Ol-
geirsson hefur útsett. Það er líka
mikill dans í sýningunni, sem Ástrós
Gunnarsdóttir hefur umsjón með.
Okkar markmið er að sýna börnum
leikhús í sem mestum gæðaflokki,
þannig að við höfum reynt að skapa
á sviðinu ævintýraheim, eins og
leikhúsið eitt getur búið til.“
Eins og blaðamaður hefur sann-
reynt er leik- og hljóðmyndin í sýn-
ingunni tilkomumikil, og fjöldi leik-
ara er ekki takmarkaður; alls 24
leikarar taka þátt í sýningunni. Þar
af eru fimm börn sem leika grá-
dverga, og svo eru rassálfarnir að
sjálfsögðu á sínum stað. Berndt
Ogrodnik hefur búið þá til og einnig
fljúgandi skógarnornir. „Við erum
sennilega með stærsta brúðuleikhús
í heimi,“ segir Sigrún Edda bros-
andi. „Önnur skógarnornin er risa-
stór strengjabrúða með átta metra
löngum strengjum og þarf fjóra
leikara til að stjórna henni. Það er
búið að vera mikið ævintýri að
vinna að þessari sýningu!“
Sigrún Edda er enginn nýgræð-
ingur á sviði barnaefnisgerðar.
Flest börn þekkja til dæmis sjón-
varpsþættina um Bólu, sem koma
úr hennar smiðju, þekkja röddina
hennar í mýmörgum talsetningum á
sjónvarpsefni og nafn hennar af
barnabókum, nú síðast mynda-
sögubókinni Rakkarapakki sem Sig-
rún Edda skrifaði ásamt Jan Pozok
og kom út fyrir síðustu jól. Síðast
en ekki síst ættu börn og barnafor-
eldrar að muna eftir henni einmitt
úr Lindgren-leiksýningum; sem
Línu Langsokk í Þjóðleikhúsinu ár-
ið 1983 og sem Ronju sjálfri í Borg-
arleikhúsinu árið 1993.
Hún hefur því yfirleitt verið „hin-
um megin við sviðið“, eins og hún
orðar það sjálf, ekki í leik-
stjórastólnum, og segir vinnuna við
Ronju ræningjadóttur nú vera eitt
besta leikstjórnarnámskeið sem hún
hefur farið á. Síðasta sýning sem
hún leikstýrði í Borgarleikhúsinu
var líka talsvert ólík ævintýrinu um
Ronju; það voru hinar eft-
irminnilegu Píkusögur Eve Ensler.
„Það er kannski það form sem er
knappast, þótt það sé ekki endilega
auðveldara – það getur líka verið
mikil vinna fólgin í einfaldleikanum.
En bilið gæti ekki verið stærra, að
setja upp þannig sýningu, og svo
stórsýningu á stóra sviðinu. Þannig
að ég lít á það sem heilmikla áskor-
un að fá þetta tækifæri, og er þakk-
lát fyrir,“ segir hún.
Hágæðaleikhús fyrir börn
Í ljós reynslu sinnar af Ronju
vissi Sigrún Edda að hverju hún var
að leita, og bað sérstaklega um að
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir yrði fengin
í hlutverkið. „Hún er dásamleg,“
segir hún, „og leikhópurinn raunar
allur – við viljum búa til alvöru leik-
hús. Sú afstaða hefur stundum verið
viðloðandi barnaefni og barnaleik-
hús að það sé annars flokks, en sú
hugsun ríkir ekki hér. Við viljum
búa til hágæðaleikhús fyrir börn.“
Þannig hefur Sigrún Edda fengið
til liðs við sig einvalalið leikara í
sýninguna; Þórhall Sigurðsson eða
Ladda sem Matthías, föður Ronju,
Sóleyju Elíasdóttur sem Lovísu
móður hennar, Eggert Þorleifsson
sem Skalla-Pétur og Friðrik Frið-
riksson sem Birki Borkason, svo
dæmi séu tekin. „Ég er með fríðan
flokk sextán karlmanna sem taka
þátt í sýningunni, og þar er valinn
maður í hverju rúmi – stór hluti
leikaranna tekur að sér brúðu-
stjórnun til viðbótar við þau hlut-
verk sem þeir leika.“
Og má fólk eiga von á eftir-
minnilegri sýningu? „Það vona ég,“
svarar Sigrún Edda með sinni
þekktu rödd og leggur áherslu á
orðin eins og börnum er tamt. „Aðr-
ir en ég verða að dæma um það. En
við höfum unnið af einlægni.“
Í lok samtals okkar segir hún frá
styttu af Astrid Lindgren, sem er
að finna í safni kenndu við hana í
Stokkhólmi. „Hún situr á bekk, og
ef þú leggur höndina á hjartastað
styttunnar, þá er hún heit,“ segir
hún. „Við höfum það að leiðarljósi í
þessari sýningu.“
Leikrit byggt á sögu Astridar
Lindgren í leikgerð Anninu
Enckell
Þýðandi: Þorleifur Hauksson
Tónlist: Sebastian
Tónlistarstjóri:
Karl O. Olgeirsson
Leikmynd og búningar:
Sigurjón Jóhannsson
Brúður: Bernd Ogrodnik
Hreyfingar og dans:
Ástrós Gunnarsdóttir
Lýsing:
Halldór Örn Óskarsson
Hljóðmynd:
Jakob Tryggvason
Leikgervi:
Sigríður Rósa Bjarnadóttir
Leikarar: Arnbjörg Hlíf Vals-
dóttir sem Ronja, Friðrik Frið-
riksson, sem Birkir Borkason,
Þórhallur Sigurðsson (Laddi)
sem Matthías, Sóley Elíasdótt-
ir sem Lovísa, Eggert Þor-
leifsson sem Skalla-Pétur,
Björn Ingi Hilmarsson, Davíð
Guðbrandsson, Ellert A. Ingi-
mundarson, Gunnar Hansson,
Halldór Gylfason, Hildigunnur
Þráinsdóttir, Hinrik Þór Svav-
arsson, Kjartan Bjargmunds-
son, Oddur Bjarni Þorkelsson,
Orri Huginn Ágústsson,
Tryggvi Gunnarsson, Valur
Freyr Einarsson, og Þór Tul-
inius. Auk þeirra taka fimm
börn þátt í sýningunni.
Leikstjórn: Sigrún Edda
Björnsdóttir
Ævintýra-
heimur
Ronju
Leikrit byggt á sögunni um Ronju ræningja-
dóttur verður frumsýnt á stóra sviði Borgar-
leikhússins í dag. Inga María Leifsdóttir hitti að
máli Sigrúnu Eddu Björnsdóttur leikstjóra, sem
sagði henni frá ævintýralegri reynslu
sinni af Ronju, og einlægninni sem skiptir
mestu þegar kemur að barnaleikhúsi.
Ronja ræningjadóttir verður
frumsýnd í Borgarleikhúsinu í dag
klukkan 14.
ingamaria@mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Arnbjörg Hlíf Valsdóttir í hlutverki sínu sem Ronja ræningjadóttir.
Morgunblaðið/Ómar
Grádvergar eru leiknir af fimm börnum og rassálfarnir eru líka á sínum stað.
Morgunblaðið/Kristinn
„Ef við viljum breyta heiminum gerum við það gegnum börnin okkar. Það
er stóra samhengið í sögunni um Ronju ræningjadóttur,“ segir Sigrún
Edda Björnsdóttir leikstjóri. „Það hefur stundum verið viðloðandi barna-
efni og barnaleikhús að það sé annars flokks, en sú hugsun ríkir ekki hér.
Við viljum hágæðaleikhús fyrir börn.“
Ronja ræn-
ingjadóttir